Bára Hildur og Ástráður hætt að vinna saman
Kærustuparið Bára Hildur Jóhannsdóttir ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur og Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari eru hætt að vinna saman. Þau störfuðu saman á skrifstofu Ríkissáttasemjara en nú er hún komin með aðra vinnu. Hún var sáttasemjari á skrifstofu Ríkissáttasemjara ásamt Aldísi Magnúsdóttur sem enn er að störfum.
Smartland greindi frá því í febrúar á þessu ári að Ástráður og Bára Hildur væru nýtt par en ástin kviknaði á vinnustaðnum. Þá voru þau farin að sjást saman opinberlega en mikil leynd hvíldi yfir sambandinu í upphafi.
Eftir að sambandið varð opinbert lá í augum uppi að það væri líklega ekki rými fyrir bæði Ástráð og Báru Hildi á sömu skrifstofu þar sem um fámennan vinnustað er að ræða. Það er gömul saga og ný og það gengur yfirleitt ekki á fjögurra manna vinnustað að tveir af þessum fjórum deili saman rúmi.
Nú er Bára Hildur farin að vinna í heilbrigðisráðuneytinu en parið býr saman í glæsiíbúð í Hafnarfirði sem Ástráður festi kaup á eftir skilnað við fyrri eiginkonu. Þau eru þó ekki skráð í sambúð.
Smartland óskar Báru Hildi til hamingju með nýju vinnuna!
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/63/45/1634526.jpg)