Nýtt viðurnefni Pútíns vekur athygli – Ríkustu menn Rússlands farnir að horfa til framtíðar án hans
Ríkustu menn Rússlands eru farnir að velta því fyrir sér hvað taki við þegar Vladimír Pútín forseti hverfur af sjónarsviðinu. Sumir þeirra virðast jafnvel vera farnir að undirbúa jarðveginn fyrir breytt valdahlutföll í landinu, þótt óttinn við forsetann sé enn slíkur að fáir þora að láta óánægju sína í ljós opinberlega.
Þetta kemur fram í ítarlegri umfjöllun BBC þar sem rætt er við sérfræðinga, fyrrverandi ráðgjafa stjórnvalda og einstaklinga sem þekkja vel til innan rússnesku viðskiptaelítunnar.
Farnir að kalla Pútín „gamla manninn“
Alexandra Prokopenko, rússneskur blaðamaður og stjórnmálaskýrandi sem býr í útlegð, segir að ákveðin breyting hafi orðið á því hvernig auðjöfrarnir tali um forsetann.
Áður hafi þeir gjarnan kallað hann „yfirmanninn“, „þann fyrsta“ eða einfaldlega notað upphafsstafi hans. Nú séu sumir farnir að kalla hann „Ded“, sem þýða má sem „afi“ eða „gamli maðurinn“.
Að sögn Prokopenko má greina ákveðinn fyrirlitningartón í nýja viðurnefninu, ólíkt þeim virðingartón sem einkenndi fyrri viðurnefni forsetans.
BBC hefur einnig eftir Arkady Ostrovsky, blaðamanni The Economist og sérfræðingi í málefnum Rússlands, að söguleg breyting kunni að vera að eiga sér stað í afstöðu auðugustu manna landsins til framtíðar þess.
Þótt margir þeirra hafi hagnast gríðarlega á valdatíð Pútíns eru þeir orðnir þreyttir á því hversu takmörkuð pólitísk áhrif þeirra eru og þeim hömlum sem alþjóðlegar refsiaðgerðir hafa sett á líf þeirra.
Óttast að missa allt
Óttinn við stjórnvöld er þó enn gríðarlegur. Prokopenko segir meðal annars frá auðjöfri sem sat á farsíma sínum meðan hún ræddi við hann, í þeirri trú að það gæti komið í veg fyrir að rússneska leyniþjónustan hleraði samtal þeirra.
Hún segir atvikið minna á ótta fólks á tímum Jósefs Stalíns.
Dmitry Nekrasov, fyrrverandi ráðgjafi í Kreml sem nú býr í útlegð, segir við BBC að sumir auðjöfrar séu þegar farnir að rækta tengsl við áhrifamikla ráðherra og menn innan öryggiskerfisins.
Þeir fari þó afar varlega enda geti hvers kyns tilraunir til að ögra núverandi valdakerfi haft alvarlegar afleiðingar.
Milljarðamæringur vill binda enda á eins manns stjórn
Sérstaka athygli vakti þegar Andrey Melnichenko, einn ríkasti maður Rússlands, veitti The Economist viðtal fyrr á þessu ári.
Þar talaði hann meðal annars fyrir breytingum sem myndu binda enda á eins manns stjórn í Rússlandi og auknum samskiptum landsins við umheiminn.
Melnichenko krafðist þó ekki afsagnar Pútíns og tók að hluta undir málflutning stjórnvalda um stríðið í Úkraínu.
Ostrovsky, sem tók viðtalið, telur engu að síður að auðjöfurinn hafi ekki eingöngu verið að tala fyrir sjálfan sig heldur einnig að koma á framfæri sjónarmiðum annarra áhrifamikilla viðskiptamanna.
Hvað gerist þegar Pútín fer?
Í umfjöllun BBC eru nefndar þrjár mögulegar sviðsmyndir fyrir framtíð Rússlands eftir Pútín. Ein er að lýðræðisleg stjórnvöld taki við, önnur að nýr einræðisherra komist til valda og sú þriðja að auðjöfrarnir endurheimti pólitísk áhrif sín, líkt og þeir höfðu á tíunda áratug síðustu aldar.
Sérfræðingar sem BBC ræðir við telja síðastnefndu sviðsmyndina sérstaklega áhugaverða í ljósi þess að margir auðjöfranna þrái að endurheimta fyrri áhrif sín.
Ekkert bendir þó til þess að brotthvarf Pútíns sé yfirvofandi eða að auðjöfrarnir séu tilbúnir að grípa til aðgerða gegn honum.
Bill Browder, fjárfestir og harður gagnrýnandi forsetans, telur raunar afar ólíklegt að þeir þori að ögra honum á meðan hann er við völd.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗