Myndir: Stemning á úrslitakvöldi Skrekks

Gleðin var við völd í Borgarleikhúsinu í kvöld.

Árbæjarskóli fagnaði sigri í kvöld í úrslitum Skrekks, árlegrar hæfileikakeppni í Reykjavík þar sem hópar grunnskólanema leika listir sínar.

Fagnaðarlæti brutust út þegar úrslitin voru tilkynnt.

Keppnin var haldin í Borgarleikhúsinu og var mikil stemning á meðal barnanna. Breiðholtsskóli hafnaði í öðru sæti og Langholtsskóli í því þriðja. Norðlingaskóli hlaut Skrekkstunguna fyrir skapandi notkun íslensku.

Verðlaunagripurinn fór margsinnis á loft.

Siguratriði Árbæjarskóla nefnist Bestu ár ævi þinnar og er á vef ríkisútvarpsins sagt fjalla um þrýstinginn sem fylgt geti því að vera unglingur og tilfinninguna um að þurfa að gera allt „rétt“.

Að lokum komi í ljós að enginn er með allt á hreinu og að engin ein rétt leið sé til að vera unglingur, eða til að vera þú sjálfur.

Árbæingar gátu fagnað í kvöld.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅