Myndir: Stemning á úrslitakvöldi Skrekks
Árbæjarskóli fagnaði sigri í kvöld í úrslitum Skrekks, árlegrar hæfileikakeppni í Reykjavík þar sem hópar grunnskólanema leika listir sínar.
Keppnin var haldin í Borgarleikhúsinu og var mikil stemning á meðal barnanna. Breiðholtsskóli hafnaði í öðru sæti og Langholtsskóli í því þriðja. Norðlingaskóli hlaut Skrekkstunguna fyrir skapandi notkun íslensku.
Siguratriði Árbæjarskóla nefnist Bestu ár ævi þinnar og er á vef ríkisútvarpsins sagt fjalla um þrýstinginn sem fylgt geti því að vera unglingur og tilfinninguna um að þurfa að gera allt „rétt“.
Að lokum komi í ljós að enginn er með allt á hreinu og að engin ein rétt leið sé til að vera unglingur, eða til að vera þú sjálfur.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗







