„Svo get ég kannski sagt mín svör“

„Ég svaraði hverri einustu spurningu sem fyrir mig var lögð en það er eitt að svara spurningum og það er annað að svara þeim eins og viðkomandi vill heyra þær,“ sagði Inga. Samsett mynd/mbl.is/Eyþór/Aðsend

„Ég svaraði hverri einustu spurningu sem fyrir mig var lögð en það er eitt að svara spurningum og það er annað að svara þeim eins og viðkomandi vill heyra þær,“ segir Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra.

„Þannig að ég mæli nú bara með því að ef einstaklingar vilja raunverulega að ég svari spurningunum eins og þeir vilja heyra þær, þá bara prenta þeir það út í 48 punkta tahoma, svo ég geti þá lesið það, og rétt mér það og ég get þá lesið það upp fyrir þá. Svo get ég kannski sagt mín svör.“

Þetta kom fram í máli ráðherra í Bítinu á Bylgjunni í morgun en Margrét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri Skarðshlíðarskóla, gerði grein fyrir því í Facebook-færslu á föstudag að hún hefði ekki fengið svar við spurningu sinni um hvernig tryggja eigi jafnræði nemenda við innleiðingu nýs námsmats, þrátt fyrir að hafa ítrekað hana við mennta- og barnamálaráðherra á opnum fundi fyrir viku.

„Þegar ég bað aftur um svar við þeirri spurningu sagði ráðherra ákveðið að þetta væri ekki tveggja manna tal og að nú væri hún að tala,“ segir Margrét í færslunni.

„Svo get ég kannski sagt mín svör“

Lilja Katrín, einn þriggja þáttastjórnenda, spurði Ingu út í andóf gegn nýja kerfinu.

„Ég til dæmis fékk fyrirspurnir og það var mest lesna fréttin á Morgunblaðinu í gær: Inga svarar ekki spurningum. Það var opinn fundur hjá okkur í Flokki fólksins í Hafnarfirði á mánudaginn var. Þar var aðstoðarskólastjóri í Hafnarfirði, hún kemur með sínar skipulögðu spurningar fyrir menntamálaráðherra, sem er bara vel, mér finnst bara frábært að fá skipulagðar spurningar,“ svaraði Inga.

„Ég hef svarað öllum spurningum, alltaf, nema þegar ég lagði á flótta undan Elísabetu Ingu [fréttamanni á fréttastofu Sýnar] á dögunum og rúllaði nánast niður stigann fyrir framan MR á dögunum, sælla minninga. Það er nú ýmislegt gert til þess að láta mann líta út eins og búðing eins og ég kalla það nú. En í þessu tilviki er aðalfréttin á Morgunblaðinu: Inga svarar ekki spurningum.

Ég svaraði hverri einustu spurningu sem fyrir mig var lögð en það er eitt að svara spurningum og það er annað að svara þeim eins og viðkomandi vill heyra þær. Þannig að ég mæli nú bara með því að ef einstaklingar vilja raunverulega að ég svari spurningunum eins og þeir vilja heyra þær, þá bara prenta þeir það út í 48 punkta tahoma, svo ég geti þá lesið það, og rétt mér það og ég get þá lesið það upp fyrir þá. Svo get ég kannski sagt mín svör.“

„Óvandaðasta blaðamennska sem maður sér“

„Þetta var einhver sú óvandaðasta blaðamennska sem maður sér,“ hélt Inga áfram.

„Þegar verið er að koma með svona, mest lesið, ég er aldrei spurð einu sinni að því hvort ég hafi svarað spurningunum. Enginn sem var með mér á þessum fundi var spurður að því hvort menntamálaráðherra svaraði spurningunum. Ég svaraði hverri einustu spurningu, eins og ég geri alltaf. En það er ekki þar með sagt að svörin mín séu akkúrat að falla í kramið hjá öllum þeim sem á þau hlýða.“

Spurði Lilja Katrín þá hvort Ingu þætti andófið persónulegt.

„Ég er að segja að í þessu tilviki þá er það pólitískt. Það er bara almennt pólitískt. Já, já, ég er náttúrulega lögð í einelti á Morgunblaðinu. Það liggur náttúrulega alveg fyrir. Það veit það öll þjóðin.“

Ákveðinn hluti kennara andæfi alltaf

Þá áréttaði Lilja Katrín að hún ætti ekki við Morgunblaðið heldur hvort Inga teldi óánægjuraddir innan skólahreyfingarinnar persónulegar, sem Inga svaraði neitandi.

„Það er alveg sama hverju hefur verið stungið upp á þá hefur ákveðinn hluti kennara alltaf verið að andæfa og ekki liðið vel með það en ég finn það bara að stærsti hluti þeirra, og mjög stór hluti þeirra, er að senda mér þakkir. Segja til dæmis eins og með símafríið sem er komið, að það sé bara stórkostleg breyting inni í skólanum strax. Hlátur, gleði og ánægja frammi á gangi,“ sagði hún.

Aðstoðarskólastjórinn vill að spurningalistinn verði birtur

Þá sagði menntamálaráðherra að með breytingunni yfir í tölukvarða verði sýnilegt í prósentum hvaða vægi hver þáttur námsefnisins hefur. Í lok áfangans verði þættirnir lagðir saman og einkunn reiknuð þannig.

„Þetta skilja meira en 70% allra sem hafa svarað könnun MMS, Miðstöðvar menntunar og skóla, og eins og ég segi það voru aðeins sex skólar af öllum þeim sem tóku þátt í þessari könnun, sem voru 104 skólar, sem töldu sig ekki vera alveg öruggir með það hvernig þeir ættu að fylgja þessu úr hlaði,“ sagði hún.

Könnunin sem Inga vísar til var meðal þeirra atriða sem Margrét Lilja, aðstoðarskólastjóri Skarðshlíðarskóla, gagnrýndi í færslu sinni. Hún hefði sjálf tekið þátt og þar hafi verið spurt um mun fleiri atriði en þau sem fram koma í fréttatilkynningu ráðuneytisins. Þar séu aðeins birtar niðurstöður tveggja spurninga, annars vegar um gagnsemi funda MMS og hins vegar um hversu vel svarendur telji sig skilja nýja einkunnakvarðann.

Margrét vill að niðurstöður annarra spurninga verði einnig gerðar opinberar og kallaði eftir því að ráðuneytið birti spurningalistann og allar niðurstöður könnunarinnar.

„Enginn skilinn eftir úti í miðri á“

„Þetta er ekki fyrr en næsta sumar, reglugerðin er komin fram, allur leiðarvísirinn liggur fyrir og við boðin og búin og allir sérfræðingarnir í ráðuneytinu tilbúnir til þess að taka utan um þá sem ekki skilja,“ hélt Inga áfram.

Hún hafi stungið upp á því við skrifstofustjórann í ráðuneytinu að halda vinnustofu með þeim sem vilja frekari útskýringar og stuðning.

„Það stendur ekki á okkur. Það er enginn skilinn eftir úti í miðri á með engan kút og engan kork. Það sem er hlálegast af því öllu er að það eru allir sammála um það og enginn segist vera á móti því að breyta í tölur. En þeir vilja bara að ég dragi það það lengi að ég sé definitely dottin út úr ráðuneytinu.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅