Hagnaður Kaldalóns fyrir skatta meira en tvöfaldaðist

Jón Þór Gunnarsson, forstjóri Kaldalóns.

Jón Þór Gunnarsson, forstjóri Kaldalóns. mbl.is/Hallur Már

Hagnaður fasteignafélagsins Kaldalóns fyrir skatta nam 3.511 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins, samanborið við 1.534 milljónir á sama tímabili í fyrra.

Hagnaðurinn jókst því um tæplega 129% milli ára. Rekstrartekjur félagsins námu 4.973 milljónum króna og jukust um 20%.

Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingar nam 3.896 milljónum króna og jókst um 21% frá sama tímabili í fyrra, þegar hann nam 3.211 milljónum. Á þriðja ársfjórðungi nam rekstrarhagnaðurinn 1.478 milljónum króna og var 28% meiri en á sama fjórðungi í fyrra, að því er fram kemur í tilkynningu. 

Rekstrartekjur á þriðja ársfjórðungi námu 1.841 milljón króna og jukust um 23% milli ára. Í tilkynningu félagsins kemur fram að tekjuvöxturinn sé í samræmi við stækkun eignasafnsins og skýrist meðal annars af fjárfestingum og endurnýjun leigusamninga. Raunvöxtur rekstrartekna fyrstu níu mánuði ársins var um 15%.

Matsbreytingar fjárfestingareigna námu 3.932 milljónum króna á tímabilinu, samanborið við 1.553 milljónir á fyrstu níu mánuðum síðasta árs. Þar af námu matsbreytingar á þriðja ársfjórðungi 1.073 milljónum króna. Félagið segir þær að mestu tilkomnar vegna verðlagsbreytinga og nýrra leigusamninga.

Hrein fjármagnsgjöld námu 4.317 milljónum króna á tímabilinu, þar af voru verðbætur 2.266 milljónir. Handbært fé frá rekstri nam hins vegar 2.192 milljónum króna.

Fasteignir metnar á rúman 101 milljarð

Verðmæti fjárfestingareigna Kaldalóns nam 101,5 milljörðum króna í lok september og hafði aukist um 16,5 milljarða frá áramótum. Heildareignir félagsins námu 104,3 milljörðum króna, eigið fé 34,8 milljörðum og vaxtaberandi skuldir 59,1 milljarði króna.

Handbært fé nam 2.129 milljónum króna í lok september. Að auki hafði félagið aðgang að 2.900 milljónum króna í óádregnum lánalínum.

Arðsemi eigin fjár var 13% á ársgrundvelli fyrstu níu mánuði ársins, samanborið við 8% á sama tímabili í fyrra. Eiginfjárhlutfall félagsins var 33% í lok september og veðsetningarhlutfallið 58%.

Tekjuvegið útleiguhlutfall, að þróunareignum undanskildum, var 95% á tímabilinu samanborið við 97% á sama tímabili í fyrra.

Frá áramótum hefur félagið gefið út markaðsskuldabréf fyrir samtals 16.740 milljónir króna. Fastir vextir eru nú á 70% vaxtaberandi skulda félagsins.

Kaup á fasteign í Hafnarfirði

Í tilkynningunni kemur einnig fram að Kaldalón hafi undirritað kaupsamning um Hólshraun 1 í Hafnarfirði í byrjun nóvember. Þar hefur Fjarðarkaup starfrækt verslun um árabil.

Heildarvirði fasteignarinnar í viðskiptunum er 2.155 milljónir króna. Samhliða kaupunum var gerður langtímaleigusamningur um alla eignina. Áætlar félagið að rekstrarhagnaður aukist um 195 milljónir króna á ársgrundvelli vegna kaupanna, en áhrifin komi að mestu fram á seinni hluta árs 2027. Kaupin eru háð fyrirvörum.

Fasteignir FÍ fasteignafélags voru afhentar 1. júní og var þriðji ársfjórðungur því sá fyrsti þar sem þær skiluðu tekjum allan fjórðunginn.

Greiddi tæpan milljarð í arð

Kaldalón greiddi 998 milljónir króna í arð til hluthafa á fyrstu níu mánuðum ársins og keypti eigin bréf fyrir 667 milljónir króna. Þar af voru 396 milljónir króna í endurkaupum með öfugu tilboðsfyrirkomulagi í september. Samanlagt jafngilda greiðslurnar tæplega 6% af markaðsverðmæti félagsins við birtingu tilkynningarinnar.

Félagið stefnir að því til lengri tíma að 50–75% af handbæru fé frá rekstri renni til hluthafa með arðgreiðslum og endurkaupum eigin bréfa. Viðmið félagsins fyrir árið 2027 er 35–55%.

Afkomuspá Kaldalóns fyrir árið er óbreytt frá því sem kynnt var í ágúst. Gert er ráð fyrir að leigutekjur ársins verði á bilinu 6.670–6.800 milljónir króna og að rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingar verði á bilinu 5.140–5.300 milljónir.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅