Akranes tilbúið til vaxtar með góðu lóðaframboði
Akraneskaupstaður áformar að verja tæplega 1,1 milljarði kr. til fjárfestinga og framkvæmda á næsta ári, skv. fjárhagsáætlun sem nú er til umræðu. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við gervigrasvöll á Jaðarsbökkum hefjist á nýju ári. Sömuleiðis að hefja skipulags- og útboðsvinnu vegna nýs leikskóla.
Fyrirhugaðar fjárfestingar á árunum 2027-2030 verða um 5 milljarðar kr. Á þeim tíma eiga að fara að jafnaði 300-400 milljónir króna á ári til nýframkvæmda og viðhalds á götum og stígum.
Lagt er til að álagningarhlutfall fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði lækki úr 1,6146% í 1,54%. Með því á að draga úr álögum á fyrirtæki í bænum og gera Akranes að enn álitlegri kosti fyrir ný fyrirtæki, að því er segir á heimasíðu bæjarins. Gott framboð er á lóðum fyrir atvinnu- og íbúðaruppbyggingu. Bærinn er því vel í stakk búinn til að mæta vexti.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗