Um 24 gráða frost

Innlent | mbl | 16.11.2026 | 23:00

Frostið náði tæplega 24 gráðum við Mývatn í dag. Mynd úr safni. mbl.is

Víða varð mjög kalt á landinu í dag enda kjöraðstæður, hægur vindur og bjartviðri víða um landið.

Mesta frostið mældist við Mývatn en þar mældist frostið mest 23,9 gráður.

Næstkaldast varð í Möðrudal en þar mældist frostið 21,9 gráður.

Á Hólasandi og á Þingvöllum mældist rúmlega 18 gráða frost.

Áfram er spáð köldu veðri næstu daga en samkvæmt spá Veðurstofu Íslands tekur að hlýna á ný rétt fyrir helgi.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅