Náðu til Microsoft gegnum Arnald Indriðason

Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, afhjúpar takkann sem Apple er boðið að ýta á til að gangast íslenskunni á hönd í verkum sínum. Örðugt hefur reynst að koma á samtali við tæknirisann sem átti 50 ára afmæli í vor. mbl.is/Karítas

„Við skorum á Apple að innleiða íslensku í sínar lausnir. Sagan er nú þannig að við Íslendingar eigum mjög merka sögu af því að koma okkar tungumáli að í alls konar tækni,“ segir Óttar Kolbeinsson Proppé, yfirmaður stefnu, samhæfingar og alþjóðamála hjá Almannarómi – miðstöð máltækni á Íslandi, í samtali við mbl.is.

Í dag, á degi íslenskrar tungu, ýttu Almannarómur og Íslandsstofa, í samstarfi við menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, átakinu „Tryggjum íslenskunni framtíð í tækni“ úr vör og er þar um að ræða ákall til bandaríska tæknirisans Apple um að innleiða íslensku í tæki sín og lausnir.

Apple hefur verið óþægur ljár í þúfu, enda orðið öllu meira stórveldi en þegar tveir unglingar, Steve Jobs og Stephen Wozniak, stofnuðu fyrirtækið í bílskúr í Los Altos í Kaliforníu 1. apríl 1976. Með átaki Almannaróms og Íslandsstofu er Apple boðið að bætast í hóp þeirra tæknifyrirtækja sem bjóða upp á íslensku, en stýrikerfi Apple og raddaðstoðin Siri eru enn ekki í boði á ástkæra ylhýra.

Markmið átaksins er tvíþætt. Annars vegar er það að hvetja Apple til að innleiða íslensku í tæki sín og lausnir, hins vegar að vekja alþjóðlega athygli á íslenskum máltæknilausnum. Er almenningi boðið að skrifa undir áskorun til Apple sem gera má hér og er forsvarsmönnum fyrirtækisins boðið að ýta á rafrænan takka og kveikja þar með á íslensku í lausnum sínum.

Hlúð að íslenskunni í þúsund ár

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, afhjúpaði takkann við athöfn í Eddu – húsi íslenskunnar í dag og sagði við það tækifæri að íslenskan hefði lifað og dafnað í þúsund ár vegna þess að við hefðum hlúð að henni.

„Til að hún geti dafnað næstu þúsund árin þarf tæknin að skilja hana og tala hana reiprennandi. Við bjóðum Apple að taka þetta skref með okkur og tryggja saman framtíð íslenskunnar,“ sagði ráðherra.

Við sama tækifæri hlaut Vilhjálmur Þorsteinsson, stofnandi og stjórnarformaður Miðeindar, verðlaun Jónasar Hallgrímssonar.

Óttar heldur áfram og rifjar upp að íslenskir stafir hafi verið komnir á lyklaborð þegar í kringum 1970.

„Þetta er starf sem við höfum alltaf unnið dálítið sjálf á Íslandi, enginn gerir þetta fyrir okkur, enginn er endilega að hugsa fyrir íslenskri tungu. „Einhverjir alþjóðlegir tæknirisar eða fyrirtæki sem eru að þróa einhverja tækni eiga það náttúrulega til að gleyma þessu litla tungumáli sem svo fáir tala. Þannig að við höfum tekið málin í okkar eigin hendur í gegnum tíðina og komið íslensku að í alls konar tækni og höfum gert það með mjög fjölbreyttum hætti,“ segir Óttar.

Ekki lýgur Almannarómur. Óttar Kolbeinsson Proppé ræðir átakið til að ná til Apple. Ljósmynd/Amannarómur

Gögn opin og aðgengileg fyrirtækjunum

Svo hafi það gerst árið 2018 að máltækniáætlanir hafi tekið að líta dagsins ljós hjá íslenskum stjórnvöldum „þar sem við fjármögnum þróun á alls konar tækni og söfnun gagna fyrir íslenska tungu hérna innanlands sem á svo að nýtast til þess að þróa tækni á borð við íslenskar tölvuraddir, íslenskan talgreini og síðan þetta stóra textasafn sem er búið að safna hérna inn á Árnastofnun sem heitir Risamálheildin og er gefin út opin“, heldur hann áfram.

Gögn til að auðvelda notkun íslensku í tækjum og forritum erlendra stórfyrirtækja hafi verið opin og aðgengileg auk þess sem íslenskir fulltrúar hafi haldið utan og hvatt tæknifyrirtækin til þess að nýta sér þetta starf og innleiða íslensku í sínar lausnir.

„Og það hefur gengið mjög vel. Öll þessi stærstu fyrirtæki eru búin að innleiða íslensku. Við getum notað allar lausnir Google á íslensku, allar lausnir Microsoft og flestar lausnir Amazon. Þessi stóru mállíkön virka líka öll á íslensku, ChatGPT, OpenAI, Claude og Anthropic og Gemini hjá Google,“ segir Óttar enn fremur.

Aðspurður segir hann starfsfólk Almannaróms reglulega ítreka íslenskuna við fyrirtækin. „Við sjáum að þau gefa út einhverjar nýjar lausnir og þá sendum við erindi og eigum oft okkar tengilið innan fyrirtækjanna,“ útskýrir hann.

Ráðherra í pontu í Eddu í dag.

Ráðherra í pontu í Eddu í dag. mbl.is/Karítas

Vilja skýr svör frá Apple

Oft snúist upphaf samskipta um að finna tengilið hjá erlendum tæknifyrirtækjum, helst einhvern sem búi yfir einhvers konar Íslandstengingu eða hafi áhuga á Íslandi. Hjá Microsoft segir Óttar Almannaróm til dæmis hafa komist í samband við stjórnanda stórrar deildar sem sé mikill aðdáandi Arnaldar Indriðasonar.

„Við færðum honum allar bækur Arnaldar áritaðar sem hann var mjög ánægður með. Þannig að oft eru þetta einhverjar gríðarlega skemmtilegar leiðir sem við höfum farið,“ segir yfirmaður alþjóðamála Almannaróms.

Vilhjálmur Þorsteinsson ávarpar samkomuna, honum voru í dag veitt verðlaun listaskáldsins góða Jónasar Hallgrímssonar. mbl.is/Karítas

Apple sé hins vegar nánast eina fyrirtækið sem illa hafi gengið að komast í samband við.

„Ráðherrar hafa í gegnum tíðina sent fyrirtækinu bréf þar sem beðið hefur verið um innleiðingu íslensku, en fengið litlar undirtektir. Nú erum við að reyna að koma á samskiptum við Apple, fá skýr svör frá fyrirtækinu um hvers vegna það vilji hreinlega ekki innleiða íslensku. Það er bara tvennt sem kemur til greina, annaðhvort er þetta bara alls ekki áherslumál hjá fyrirtækinu, sem mig grunar dálítið að sé raunin vegna þess að þau bjóða náttúrulega ekki upp á mjög mörg tungumál í sínum lausnum yfir höfuð, eða það er eitthvað sérstakt í þeirra tækni sem kallar á annars konar gögn en hin fyrirtækin hafa nýtt sér hingað til. Það þykir mér bara ólíklegt,“ segir Óttar.

Nú sé markmiðið að safna eins mörgum undirskriftum og verða megi frá Íslendingum. „Við viljum ná dálítið góðu hlutfalli þjóðarinnar til þess að skora á fyrirtækið að ráða bót á þessum málum og við vonum að það geti orðið dálítið sterkur punktur í okkar samtali ef við náum góðu hlutfalli þjóðarinnar sem skorar á fyrirtækið og vonum að það skapi nægilegan þrýsting til að brugðist verði við.“

Viðstaddir í veglegu bókasafni Eddu klappa í kjölfar einhvers nokkurra liða hátíðardagskrárinnar í dag. mbl.is/Karítas

Hann segir að nú sé tímabært að reyna nýja leið sem sé skapandi og skemmtileg auk þess að vera yfirmönnum Apple þörf áminning um íslensku í tækni fyrirtækisins.

„Við vonum að þetta veki fólk hjá Apple til umhugsunar og veki um leið slíka athygli að það sé þá einhvern veginn tilbúnara og opnara í þessu samtali sem við erum að reyna að eiga við fyrirtækið til hliðar við undirskriftasöfnunina,“ segir Óttar Kolbeinsson Proppé, yfirmaður stefnu, samhæfingar og alþjóðamála hjá Almannarómi – miðstöð máltækni á Íslandi, að lokum um átakið sem ýtt var úr vör í dag, á degi íslenskrar tungu.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅