Um 24 gráða frost
Innlent | mbl | 16.11.2026 | 23:00
Víða varð mjög kalt á landinu í dag enda kjöraðstæður, hægur vindur og bjartviðri víða um landið.
Mesta frostið mældist við Mývatn en þar mældist frostið mest 23,9 gráður.
Næstkaldast varð í Möðrudal en þar mældist frostið 21,9 gráður.
Á Hólasandi og á Þingvöllum mældist rúmlega 18 gráða frost.
Áfram er spáð köldu veðri næstu daga en samkvæmt spá Veðurstofu Íslands tekur að hlýna á ný rétt fyrir helgi.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗