Aron Einar: Léttir, sorg og kvíði
Aron Einar Gunnarsson lék sinn síðasta landsleik fyrir íslenska landsliðið á Laugardalsvelli í kvöld.
Hann lék alls 113 landsleiki og jafnaði þar með leikjamet Birkis Bjarnasonar. Aron var fyrirliði íslenska landsliðsins á EM 2016 og HM 2018, einu stórmótunum tveimur sem karlalandsliðið hefur tekið þátt í.
„Þetta eru miklar tilfinningar. Léttir, sorg og kvíði. Þetta var allt í bland,“ sagði Aron Einar í samtali við mbl.is eftir leik.
„Það hjálpaði mér mikið að hafa fjölskylduna í stúkunni. Eins og ég hef sagt í viðtölum áður veit hún hvað ég hef þurft að ganga í gegnum til að halda mér við og vera í toppformi fyrir landsliðið.
Ég viðurkenni það að ég hef alltaf verið mikill landsliðsmaður og það hefur fylgt mér allan ferilinn. Öll meiðsli hafa snúist um það hvort ég nái næsta landsleik. Það er held ég það sem ég skil helst eftir mig,“ bætti Aron Einar meðal ananrs við en viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗