Forskotið minnkar: „Það er eitthvað að gerast“
Hanna Birna Kristjánsdóttir, stjórnarformaður og einn stofnenda Reykjavík Global Foundation, á Heimsþingi kvenleiðtoga í Hörpu. Hún segir þróun viðhorfa hér á landi valda vonbrigðum. Ljósmynd/María Kristjánsdóttir
Ísland er áfram í efsta sæti Reykjavíkurvísitölunnar, sem mælir viðhorf til hæfni kvenna og karla til að gegna leiðtogastörfum. Vísitala landsins hefur þó lækkað um sex stig frá árinu 2022.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, stjórnarformaður og einn stofnenda Reykjavík Global Foundation, segir þróunina valda vonbrigðum. Jákvæðari viðhorf í G7-ríkjunum gefi hins vegar tilefni til bjartsýni.
Niðurstöður rannsóknarinnar, Reykjavík Index for Leadership, voru kynntar á Heimsþingi kvenleiðtoga sem stendur yfir í Hörpu dagana 15.–17. nóvember.
Ísland mælist með 85 stig af 100 mögulegum, samanborið við 91 stig árið 2022. Landið er þó enn 16 stigum yfir meðaltali G7-ríkjanna.
Í samtali við mbl.is segir Hanna Birna að hér á landi megi sjá sambærilega þróun og hafi áður komið fram annars staðar.
„Við höfum á undanförnum árum farið úr 91 stigi sem er langhæsta sem við höfum mælt niður í 85. Þannig að það er eitthvað að gerast hér sem sýnir að við erum aðeins seinna í þessari þróun heldur en önnur ríki.“
Fráleitt að nóg sé komið af kvenleiðtogum
Hanna Birna segir breytinguna hér á landi einkum sjást meðal ungra karlmanna. Í ákveðnum hópum sé aftur sótt í hefðbundnar hugmyndir um hlutverk kynjanna.
Í samanburði skýrslunnar við árið 2024 er vísitala karla á aldrinum 18–34 ára á Íslandi þó óbreytt, 82 stig. Vísitala kvenna hefur á sama tímabili lækkað í öllum aldurshópum.
Spurð hvort mikill sýnileiki kvenna í æðstu embættum landsins geti haft áhrif á viðhorfin segir hún fráleitt að halda því fram að nóg sé komið af kvenleiðtogum. Karlar hafi gegnt slíkum hlutverkum alla tíð en nú séu konur í fyrsta sinn í svo mörgum forystuhlutverkum hér á landi.
„En það er einhver pínu stemning í ákveðnum hópum á Íslandi til þess að sækja í svona hefðbundin viðhorf og hefðbundin gildi og það kemur alltaf niður á umburðarlyndi gagnvart fjölbreytni í stjórnunarstöðum og fjölbreytni almennt.“
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að 32% svarenda á Íslandi telja konur hæfari til forystu á sviði umönnunar barna en um fimmtungur telur karla hæfari innan löggæslu og varnarmála.
Sér vísbendingu um viðsnúning
Meðal G7-ríkjanna mælast nú jákvæðari viðhorf til jafnréttis í forystu í fyrsta sinn frá árinu 2019. Meðaltal ríkjanna hækkar úr 68 stigum í fyrra í 69 stig í ár.
Japan hækkar mest, um sex stig, og er í fyrsta sinn efst G7-ríkjanna með 76 stig. Bandaríkin hækka um fjögur stig og mælast með 69.
Hanna Birna segir hækkunina litla en telur hana geta verið vísbendingu um viðsnúning eftir bakslag undanfarinna ára.
„Hún er ekki mikil en hún vekur samt vonir um það að það bakslag sem hefur verið í gangi, að það sé eitthvað að gerast í samfélaginu sem veldur breytingum þar.“
Yngra fólk í G7-ríkjunum er þó áfram síður líklegt en eldra fólk til að telja konur og karla jafn hæf til forystu. Meðal fólks á aldrinum 18–34 ára mælist vísitalan 65 stig, níu stigum lægra en meðal fólks á aldrinum 55–65 ára.
Hanna Birna segir hefðbundnar hugmyndir yngra fólks um kynhlutverk bæði birtast í viðhorfum til kvenna í leiðtogastöðum og karla í störfum sem jafnan hafi verið talin kvennastörf.
Jafnrétti hafi líka efnahagslegt gildi
Að mati Hönnu Birnu þarf að halda áfram að minna á hvers vegna jafnrétti skiptir máli. Jöfn tækifæri kvenna og karla séu bæði réttlætismál og forsenda efnahagslegs ávinnings.
Hún segir öfluga atvinnuþátttöku kvenna hafa átt stóran þátt í hagvexti og framförum á Íslandi frá síðari heimsstyrjöld. Ríki á borð við Japan séu nú í auknum mæli að átta sig á mikilvægi þess að konur taki fullan þátt í atvinnulífinu.
Jafnframt sé staða Íslands í jafnréttismálum mikilvæg fyrir áhrif landsins á alþjóðavettvangi og því ástæða til að standa vörð um þann árangur sem náðst hefur.
Rannsóknin er unnin af rannsóknarfyrirtækinu Verian í samstarfi við Reykjavík Global Foundation og nær í ár til ellefu ríkja.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗