Mér var drullukalt
„Mér var alveg drullukalt,“ sagði Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu, eftir 3:0 sigur Íslands á Lúxemborg á Laugardalsvelli í kvöld.
Leikið var í miklum kulda þegar Ísland tryggði sér sigur í riðli sínum í C deild Þjóðadeildarinnar og sæti í B deild.
Arnar taldi leikmennina hafa verið fljóta að ná úr sér kuldanum en aðstæðurnar hefðu sett mark sitt á leikinn.
„Það var alveg greinilegt að þetta var svolítill leikur mistaka,“ sagði hann.
Leikmenn hefðu þurft tíma til að átta sig á hraða boltans og því hvernig hann skoppaði og rúllaði. Það hefði meðal annars birst í ónákvæmum sendingum og löngum boltum sem færu ýmist of langt eða of stutt.
Aðstæðurnar hefðu þó stundum nýst Íslandi í hröðum sóknum.
Arnar taldi þær raunar hafa hentað íslenska liðinu betur. Styrkur þess í gagnpressunni hefði skapað möguleika á að vinna boltann og sækja hratt.
„Miðað við aðstæður þá var þetta hinn fínasti leikur.“
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗