Risahrós á alla vallarstarfsmenn
„Þetta var frábær liðsframmistaða frá A-Ö,“ sagði Hjörtur Hermannsson eftir 3:0-sigur á Lúxemborg á Laugardalsvelli í C-deild Þjóðadeildar karla í kvöld.
„Það er frábært að halda hreinu og skora þrjú mörk á heimavelli. Þetta er hópur sem er á réttri leið og gaman að taka þátt í því,“ sagði Hjörtur í viðtali við mbl.is eftir leikinn í kvöld.
Hvernig var að spila í kuldanum hérna á Íslandi?
„Það var ansi napurt í dag en það er alltaf gott að koma heim og spila á Laugardalsvelli. Risahrós á alla vallarstarfsmenn sem vinna á Laugardalsvelli, völlurinn var í frábæru ástandi miðað við það sem aðstæður buðu upp á.“
Aron Einar Gunnarsson spilaði sinn síðasta landsleik í kvöld og Hjörtur fór af velli fyrir hann á 64. mínútu.
„Það er frábært að fá að taka þátt í þessari vegferð með honum og fá að fylgjast með honum í ansi mörg ár. Hann er einstakur liðsmaður og landsliðsmaður. Að fá að sjá hann vaxa og dafna og fá að vera sá sem knúsar hann í síðasta skipti sem hann kemur inn á völlinn er bara frábært.“
Sverrir Ingi Ingason, Aron Einar Gunnarsson, Alfons Sampsted, Hjörtur Hermannsson. Ljósmynd/Alex Nicodim
Það er langt í næsta landsleikjaglugga en það eru tveir leikir í mars.
„Núna förum við bara að einbeita okkur að félagsliðunum okkar. Það er alltaf markmiðið að vera í öllum landsliðshópnum, hefur alltaf verið og mun alltaf vera það.“
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
