Guðfaðirinn er látinn: Glæpaveldið sem hann byggði upp breytti Mexíkó fyrir fullt og allt
Miguel Ángel Félix Gallardo, einn alræmdasti fíkniefnabarón sögunnar og maðurinn sem lagði grunninn að valdamestu glæpasamtökum Mexíkó, er látinn, 80 ára að aldri.
Félix Gallardo, sem gekk undir viðurnefnunum El Padrino, eða Guðfaðirinn, og El Jefe de Jefes, eða Yfirmaður yfirmannanna, lést á sjúkrahúsi í Guadalajara í Mexíkó á sunnudag. Hann hafði verið fluttur þangað úr fangelsi tveimur dögum áður vegna versnandi heilsu. Dánarorsökin var fjölkerfabilun.
Saga Félix Gallardo varð meðal annars innblástur fyrir vinsælu Netflix-þættina Narcos: Mexico, þar sem mexíkóski leikarinn Diego Luna fór með hlutverk hans.
Frá lögreglumanni til fíkniefnakóngs
Saga Félix Gallardo er nátengd uppgangi skipulagðrar glæpastarfsemi í Mexíkó. Hann fæddist árið 1946 í Sinaloa-ríki og starfaði á yngri árum innan lögreglunnar. Hann var einnig lífvörður fjölskyldu ríkisstjóra í Sinaloa, en þau tengsl eru talin hafa hjálpað honum að koma sér upp áhrifamiklu tengslaneti.
Á áttunda og níunda áratugnum byggði hann, ásamt Rafael Caro Quintero og Ernesto Fonseca Carrillo, upp Guadalajara-glæpasamtökin, sem urðu ein umfangsmestu og valdamestu fíkniefnasamtök Mexíkó.
Samkvæmt Reuters átti Félix Gallardo stóran þátt í að breyta Mexíkó úr því að vera fyrst og fremst framleiðsluland kannabisefna og heróíns í mikilvægan flutningspunkt fyrir kókaín frá Suður-Ameríku til Bandaríkjanna.
Hann kom meðal annars á samstarfi við kólumbíska fíkniefnasmyglara, þar á meðal Medellín-glæpasamtökin sem Pablo Escobar fór fyrir.
Starfsemi glæpasamtakanna byggðist jafnframt á víðtækri spillingu og tengslum við áhrifamenn innan lögreglunnar og stjórnkerfisins. Lögreglumenn, embættismenn og aðrir áhrifamenn voru sagðir hafa þegið greiðslur fyrir að vernda starfsemina.
Morðið sem breytti öllu
Vendipunkturinn kom árið 1985 þegar bandaríska fíkniefnalögreglumanninum Enrique „Kiki“ Camarena var rænt í Guadalajara.
Camarena hafði rannsakað starfsemi samtakanna og komið að aðgerðum gegn fíkniefnaframleiðslu þeirra. Honum var rænt, hann pyntaður og að lokum myrtur. Mexíkóski flugmaðurinn Alfredo Zavala Avelar var einnig myrtur.
Morðin vöktu mikla reiði í Bandaríkjunum og urðu til þess að bandarísk yfirvöld hófu umfangsmikla rannsókn og hertu þrýstinginn á mexíkósk stjórnvöld um að láta þá sem ábyrgð báru sæta refsingu.
Félix Gallardo var síðar dæmdur fyrir aðild að mannránunum og morðunum, þótt hann hafi sjálfur alla tíð neitað sök.
Handtekinn eftir símtal um sjávarrétti
Í ítarlegri umfjöllun El País um andlát hans er rifjuð upp óvenjuleg saga af því hvernig yfirvöld höfðu loks hendur í hári hans árið 1989.
Javier Coello Trejo, fyrrverandi háttsettur saksóknari í Mexíkó, lýsti því í endurminningum sínum hvernig hann hafði sett saman lítið teymi rannsakenda sem hafði það eina verkefni að finna Félix Gallardo og handtaka hann.
Eftir margra vikna símahleranir tókst þeim, samkvæmt frásögn hans, að hafa uppi á glæpaforingjanum þegar hann hafði samband við ritara sinn og bað um að fá senda sjávarrétti eftir næturlangt skemmtanahald.
Lögreglumenn komu sér fyrir í nágrenninu og handtóku hann snemma morguns 8. apríl 1989, án þess að einu skoti væri hleypt af.
Coello Trejo hélt því síðar fram að Félix Gallardo hefði boðið honum allt að 20 milljónir Bandaríkjadala gegn því að sleppa honum lausum.
Glæpaveldið splundraðist en áhrifin lifðu áfram
Þótt Félix Gallardo hefði verið handtekinn og fangelsaður héldu áhrif glæpaveldisins sem hann byggði upp áfram að gæta í Mexíkó.
Guadalajara-samtökin liðuðust smám saman í sundur og úr þeim spruttu önnur glæpasamtök, þar á meðal Sinaloa-fíkniefnahringurinn, sem síðar varð heimsþekktur undir stjórn Joaquín „El Chapo“ Guzmán og Ismael „El Mayo“ Zambada.
Reuters bendir á að sú þróun hafi lagt grunn að átökum milli fíkniefnasamtaka sem hafa kostað gríðarlegan fjölda mannslífa í Mexíkó á síðustu áratugum.
Félix Gallardo sat í fangelsi frá handtökunni árið 1989. Hann hlaut 40 ára fangelsisdóm fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot og árið 2017 bættust 37 ár við vegna morðanna á Camarena og Zavala. Dómarnir námu því samtals 77 árum.
Síðustu árin á bak við lás og slá
Heilsu Félix Gallardo hrakaði verulega á síðustu árum. Hann glímdi meðal annars við sykursýki, háan blóðþrýsting, alvarlega sjónskerðingu og heyrnarmissi.
Hann reyndi ítrekað að fá að afplána fangelsisdóminn í stofufangelsi vegna heilsubrests. Árið 2022 féllst dómari á slíka ráðstöfun, en ekkert varð af flutningnum vegna athugasemda saksóknara við rafrænan eftirlitsbúnað sem hann átti að bera.
Félix Gallardo sat því áfram í fangelsi þar til hann var fluttur á sjúkrahús síðastliðinn föstudag. Þar lést hann tveimur dögum síðar.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗