„Draumur allra að spila í ensku úrvalsdeildinni“

Andri Lucas Guðjohnsen sækir að marki Lúxemborg í kvöld.

Andri Lucas Guðjohnsen sækir að marki Lúxemborg í kvöld. mbl.is/Eggert Johannesson

Andri Lucas Guðjohnsen var enn og aftur á skotskónum þegar Ísland vann Lúxemborg 3:0 í lokaleik Þjóðadeildarinnar í kvöld. Andri Lucas skoraði eitt af mörkum Íslands í leiknum en svo virðist sem drengurinn skori í hvert sinn sem hann fær færi til.

Hann hafði þetta að segja um leikinn og sinn persónulega árangur eftir leikinn í kvöld.

„Þetta eru búnir að vera frábærir mánuðir og bara allt tímabilið. Vonandi heldur þetta áfram bæði með landsliðinu og Blackburn.“

Ætluðu sér að vinna riðilinn

Þið haldið hreinu fimmta leikinn í röð og skorið mikið af mörkum. Í raun gengur þetta eins og í lygasögu. Er íslenska liðið kannski aðeins of stórt fyrir C-deild Þjóðadeildarinnar?

„Jú, ég myndi segja það og við erum ekkert feimnir við að halda því fram. Við ætluðum okkur að vinna þennan riðil og alveg sama hvort okkur finnist við eiga að vera ofar þá þurftum við að vinna riðilinn til þess að komast ofar.

Þetta eru vissulega öðruvísi leikir og vissulega ekki jafn erfiðir og þeir eru í efri riðlum deildarinnar. En við gerðum bara vel til að skora mikið og verjast vel.“

Andri Lucas ætlar núna að einbeita sér að baráttunni með Blackburn

Mikil athygli er á Andra Lucas fyrir árangur sinn með bæði landsliðinu og Blackburn. Hafa stórlið í ensku úrvalsdeildinni verið nefnd til sögunnar þegar kemur að áhuga á leikmanninum. Arnar Gunnlaugsson sagði á dögunum að hann vildi sjá Andra Lucas og Orra Stein Óskarsson saman hjá stórliðinu Manchester United. Hvort Andri Lucas myndi á annað borð vilja fara þangað sagði hann:

„Ég horfi á þetta sem bara eitthvað pínu extra. Þetta umtal kemur af því að mér er að ganga vel og ég er að skora mörk. Þetta er jákvætt og gaman. En allt sem gerist í framtíðinni verður bara að koma í ljós.

Það eru hörkumánuðir framundan með Blackburn sem ég ætla fyrst og fremst að einbeita mér að. Þegar glugginn opnast verður allt sem gerist í kringum hann verður bara að koma í ljós.“

Gerir sér grein fyrir að hann getur komist hærra

Það er sem sagt draumur að vera sóttur í næsta leikmannaskiptaglugga í ensku úrvalsdeildina?

„Ég held það sé draumur allra að spila í ensku úrvalsdeildinni og það er erfitt að segja nei við slíku. Ég er alveg meðvitaður um að það er hægt að fara hærra en enska Championship deildin.

Það er hins vegar langt síðan mér leið svona vel og ég var að spila svona vel. Að vera með svona gott sjálfstraust er frábær tilfinning og mér líður vel utan vallar líka. Einbeitingin er bara hjá Blackburn núna,“ sagði Andri Lucas í samtali við mbl.is.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅