Aukin hætta á alvarlegum afleiðingum

Öryggisstofnanir víða um heim hafa lýst yfir áhyggjum af vaxandi áhættu sem steðjar að kjarnöryggi vegna árása Rússlands á orkuinnviði Úkraínu. AFP/Genya Savilov

Geislavarna- og kjarnöryggisstofnanir víða um heim hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem lýst er yfir áhyggjum af vaxandi áhættu sem steðjar að kjarnöryggi vegna árása Rússlands á orkuinnviði Úkraínu. 

Þetta kemur fram á vef Geislavarna ríkisins.

Yfirlýsingin er gefin út af hálfu Samtaka kjarnorkueftirlitsstofnana í Vestur-Evrópu (WENRA), yfirmanna evrópsku geislavarnastofnana (HERCA) og yfirmanna norrænu geislavarna- og  kjarnöryggisstjórnvalda (NORA).

Áhyggjur af losun geislavirkra efna

Á vef Geislavarna ríkisins segir að þessir aðilar telji aukna hættu á alvarlegum afleiðingum vegna árása á raforkukerfi Úkraínu sem gæti, í versta falli, haft í för með sér losun geislavirkra efna frá kjarnorkuverum út í umhverfið.

Í yfirlýsingu þeirra er kallað eftir því að Rússland láti af árásum á kjarnorkumannvirki og aðra orkuinnviði í Úkraínu. 

Að sögn Geislavarna ríkisins hefur stofnunin fylgst náið með stöðu mála í Úkraínu frá upphafi stríðs og munu halda því áfram í góðri samvinnu við erlenda samstarfsaðila.

Stofnunin sér um vöktun á geislavirkum efnum í umhverfinu á Íslandi og starfrækir umfangsmikinn mælibúnað í tengslum við viðbúnað.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅