Aukin hætta á alvarlegum afleiðingum
Öryggisstofnanir víða um heim hafa lýst yfir áhyggjum af vaxandi áhættu sem steðjar að kjarnöryggi vegna árása Rússlands á orkuinnviði Úkraínu. AFP/Genya Savilov
Geislavarna- og kjarnöryggisstofnanir víða um heim hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem lýst er yfir áhyggjum af vaxandi áhættu sem steðjar að kjarnöryggi vegna árása Rússlands á orkuinnviði Úkraínu.
Þetta kemur fram á vef Geislavarna ríkisins.
Yfirlýsingin er gefin út af hálfu Samtaka kjarnorkueftirlitsstofnana í Vestur-Evrópu (WENRA), yfirmanna evrópsku geislavarnastofnana (HERCA) og yfirmanna norrænu geislavarna- og kjarnöryggisstjórnvalda (NORA).
Áhyggjur af losun geislavirkra efna
Á vef Geislavarna ríkisins segir að þessir aðilar telji aukna hættu á alvarlegum afleiðingum vegna árása á raforkukerfi Úkraínu sem gæti, í versta falli, haft í för með sér losun geislavirkra efna frá kjarnorkuverum út í umhverfið.
Í yfirlýsingu þeirra er kallað eftir því að Rússland láti af árásum á kjarnorkumannvirki og aðra orkuinnviði í Úkraínu.
Að sögn Geislavarna ríkisins hefur stofnunin fylgst náið með stöðu mála í Úkraínu frá upphafi stríðs og munu halda því áfram í góðri samvinnu við erlenda samstarfsaðila.
Stofnunin sér um vöktun á geislavirkum efnum í umhverfinu á Íslandi og starfrækir umfangsmikinn mælibúnað í tengslum við viðbúnað.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗