„Ég lærði kaldhæðnina af móður minni“

Hugleikur Dagsson myndasöguhöfundur segir að það megi gera grín að öllu, en brandarinn verði alltaf að vera fyndinn. Ef áhorfendur móðgist sé sökin grínistans, ekki þeirra. Hugleikur er fyrsti gestur Haraldar Þorleifssonar í fjórðu seríu hlaðvarpsins Labbitúrs, þar sem Halli fer í göngutúr með skapandi fólki og ræðir lífið og listina.

Hugleikur segist vera orðinn nokkuð góður í að verjast spurningunni sem hann fær oftast: Má gera grín að öllu?

„Það er hægt að gera grín að öllu, en það verður bara alltaf að vera fyndið,“ segir hann. Einfaldasta mælingin sé hvort fólk hlæi. „Ef ég færi að gera grín að eldfimu eða viðkvæmu málefni og fólk bregst illa við, þá myndi ég segja að ég hefði gert mistök. Þá tókst mér ekki að segja brandara um þetta málefni nógu vel. Ef fólk bregst illa við þá er brandarinn bilaður einhvern veginn.“

Það sem grínisti eigi aldrei að gera sé að fara í fýlu og kenna áhorfendum um. „Ef þú ferð að segja að fólk skilji bara ekki brandarann eða að fólk móðgist yfir öllu, þá er sökin þín megin.“ Hann segir hins vegar allt í lagi að segja brandara sem móðgi suma en ekki alla, þá sé hann vel heppnaður meðal þeirra sem móðgast ekki.

Hugleikur hefur litla þolinmæði fyrir svokölluðum „anti-woke“ uppistandara sem gera heilu sýningarnar um að það megi ekkert lengur.

„Þú ert aldrei fyndinn út af einhverjum réttlætanlegum ástæðum,“ segir hann. „Það er líka til fullt af woke-grínistum sem eru svo mikið anti-anti-woke að þeir eru ekki fyndnir.“ Boðskapur í gríni sé bónus, ekki markmið. „Ef ég sest niður og hugsa: Nú ætla ég að skrifa brandara með boðskap, þá verður það sjaldan fyndinn brandari.“

Lærði kaldhæðnina af mömmu

Hugleikur fæddist á Akureyri, ólst upp í Vesturbænum og á rætur í Svarfaðardal. Faðir hans var blaðamaður og fræðimaður og móðir hans, Ingibjörg Hjartardóttir, er skáld og leikskáld. Hún stofnaði ásamt vinkonum sínum áhugaleikfélagið Hugleik, sem var nefnt eftir syni hennar.

„Ég lærði kaldhæðnina af móður minni, það er mín kenning,“ segir Hugleikur. Hann var oft í herberginu þegar mamma hans og vinkonur hennar sátu við að skrifa gamanleikrit. „Þær voru að skrifa þetta upphátt og hlæja að því sem þær voru að skrifa. Svona höfundaherbergi.“

Frá föðurnum fékk hann áhugann á goðafræði. „Hann sagði mér sögur þegar ég var að fara að sofa og þá sagði hann bara einhverjar sögur úr Snorra-Eddu.“ Sögurnar hafi verið fullar af hættu og ógeði, fólk að deyja og limlesta hvert annað. „Mér fannst það alltaf mjög gaman.“

Hann hefur teiknað síðan hann man eftir sér og fyrsta myndasagan hans fjallaði um skipbrotsmann sem lenti á risaeðlueyju. „Það er ekki mikill strúktúr í þeirri sögu. Hann er bara allan tímann að flýja frá risaeðlum og á síðustu síðunni étur ein þeirra hann.“ Sagan hvarf í einhverjum flutningum, honum til mikillar eftirsjár.

Spýtukallarnir urðu að vinnunni

Spýtukallastíllinn sem Hugleikur er þekktur fyrir á rætur í barnæskunni, þegar hann og vinir hans kepptust við að teikna sögur eins hratt og þeir gátu hugsað. Þegar jafnaldrarnir hættu að teikna hélt Hugleikur áfram, reyndi að teikna „almennilega“ og æfði sig á ofurhetjum. Þá fór hann að átta sig á því sem fullorðna fólkið hafði sagt honum.

„Ef ég ætlaði að verða myndasöguhöfundur þá þyrfti ég að flytja til Bandaríkjanna eða Evrópu þar sem bransinn er. Hann var ekkert á Íslandi.“ Hann lagði drauminn á hilluna og fór í Listaháskólann. Þar, á öðru eða þriðja ári, sneri hann aftur í spýtukallana „í einhverju flippi“, einfaldari en nokkru sinni, með fullorðinslegri húmor. Viðbrögð kennara og samnemenda voru svo góð að hann hefti teikningarnar saman eftir útskrift og gaf út sjálfur.

„Þannig að allt í einu var ég ekki bara orðinn myndasöguhöfundur, heldur myndasöguhöfundur sem teiknaði verr en hann teiknaði þegar hann var að láta sig dreyma um að verða myndasöguhöfundur.“

Hann hefur sína eigin kenningu um hvers vegna stíllinn virkar.

„Hann er rosalega góður kontrast við viðfangsefnið. Brandarinn var oftast eitthvað algjörlega hræðilegt, í besta falli kúkabrandari og í versta falli um misnotkun og heimilisofbeldi og allt það hræðilegasta sem manni dettur í hug þar á milli.“ Þegar maður lesi eitthvað hræðilegt í einföldum stíl sogist það hraðar upp í heilann. „Þá verður pönsið meira.“

Hugleikur segir að ef hann væri sammála persónunum í myndasögunum sínum væri hann hræðileg manneskja.

„Þá væri ég sækópati!“ En hann fái vissulega útrás í teikningunum. Þegar hann reiðist út í samfélagið eða heyri hræðilegar fréttir byrji hann oft á Facebook-færslu sem hann stroki svo út. „Mér líður aldrei vel eftir að hafa skilað reiðinni minni svona. Mér líður alltaf miklu betur ef ég skila henni í formi teikningar, í formi brandara. Þá líður mér eins og ég hafi unnið en ekki heimurinn.“

Allir listamenn ættu að eiga eina Rakel

Hugleikur deilir skrifstofu með samstarfskonu sinni, Rakel, sem sér um að selja verkin hans. Samstarfið hófst þegar hún rak netgallerí þar sem A5-teikningarnar hans seldust „rosa vel“. Þegar breski útgefandinn hans hætti að nota lénið dagsson.com bað Hugleikur Rakel um að taka það yfir. „Og svo bara mjög stuttu síðar varð ég eini listamaðurinn sem hún sá um.“ Í dag eru þau með boli, sokka, spil, trefla og peysur, auk þess sem hún sér um alla fundi og allan „actual business.“

„Ég er svona meira bara eitthvað andlit,“ segir Hugleikur. „Ég er viss um að allir listamenn sem vilja selja eitthvað ættu bara að vera með eina Rakel. Það er bara nauðsynlegt.“ Hann segir listaháskólar ættu í raun að vera tvö hús: eitt fyrir listafólkið og annað fyrir fólkið sem sér um listafólkið. Sjálfur hafi það tekið hann allan daginn að skrifa einn reikning, „bara að hugsa um að þetta þurfi að gerast.“

Vinsæl hliðarlína hjá þeim eru flíkur með gömlum íslenskum umbúðum, eins og Bláa Opal og Royal-búðingi. Réttindamálin segir hann einföld:

„Við höfum samband við fyrirtækin og spyrjum hvort við megum prenta ókeypis auglýsingu á vörurnar þeirra og láta fólk kaupa það og klæðast. Þau segja bara já.“ Nokkrir hvítir hvalir eru þó enn eftir. Gunnars majónes hefur ekki svarað tölvupósti og Svali strandaði á lögfræðingum The Coca-Cola Company.

Hann hafnar því að þetta sé „sellout“. Það sé þegar utanaðkomandi aðilar fái hann til að gera grín með sínar vörur, nokkuð sem hann hefur sagt já við nokkrum sinnum, með sama árangri í hvert skipti.

„Þá byrja ég að skissa eitthvað fyrir þau og það var alltaf yfir strikið. Nei, við getum ekki gert þetta. Og þá var spurningin mín alltaf: Af hverju töluðuð þið við mig? Þetta er það eina sem ég er frægur fyrir.“

Dreymir um íslenska hryllingsmynd

Hugleikur hefur gert teiknaða sjónvarpsþætti og leikstýrði nýlega þáttum sem eru bæði leiknir og teiknaðir og koma út á næsta ári. Stóri draumurinn er þó hryllingsmynd.

„Ég er mjög hrifinn af Michael Myers og Jason og Freddy Krueger,“ segir hann og vill gera „bara basic Halloween Íslands“, alvarlega mynd með smá glotti, ekki meta-grín. Hann er með nokkra vonda kalla í þróun, en segir að það besta sem gæti gerst væri að eitthvert stúdíó setti honum skilafrest. „Deadline er langbesti vinur listamannsins.“

Hann mætir á skrifstofuna milli níu og fimm, vinnur eftir tékklista og hefur nýlega sótt sér app sem takmarkar notkun samfélagsmiðla.

„Ég fæ samviskubit þegar ég er ekki að gera neitt.“

Þá heldur hann úti tveimur hlaðvörpum. Í öðru svara gestir ellefu spurningum um mikilvægustu bíómyndir lífs síns. Í hinu, Hefnendunum, fara hann og Ævar vinur hans vikulega yfir nördafréttir vikunnar.

Sjálfur hefur hann alltaf lesið Marvel og segir myndasögurnar heilaga ritningu en bíómyndirnar sunnudagaskóla. Ef ofurhetjumyndirnar líða undir lok sé það ekki endilega slæmt.

„Við höfum líkt þessu við vestrann. Vestrar eru líka ofurhetjumyndir.“

Kaldhæðnin sem framhlið


Hugleikur segist í raun ekki vera kaldhæðinn í samtölum við fólk. Kaldhæðni virki best sem framhlið.

„Að maður gefi sig út fyrir að vera kaldhæðinn en sé í rauninni með einhverja einlægni á bak við. Fúli kallinn sem er síðan rosalega næs.“

Gallinn sé að honum reynist stundum erfitt að vera einlægur. Hann og konan hans rífist sjaldan, en hann hafi beðið hana um að vera leiðinlegri við sig þegar hann klúðri heimilisverkum. „Ég bregst betur við því.“

Þátturinn er aðgengilegur í heild sinni Spotify og öðrum helstu hlaðvarpsveitum.

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅