Leikmaður Arsenal lék fyrir nýtt landslið - Hafði spilað þó nokkra leiki fyrir aðra þjóð

Kepa Arrizabalaga, markvörður Arsenal, lék um helgina sinn fyrsta leik fyrir landslið Baskalands þrátt fyrir að hafa áður leikið 13 landsleiki fyrir Spán.

Kepa lék fyrri hálfleikinn þegar Baskaland vann Venesúela 1-0 í vináttulandsleik á San Mames í Bilbao. Um 40 þúsund áhorfendur fylgdust með leiknum.

Baskaland er sjálfstjórnarhérað á Spáni en landslið þess er hvorki viðurkennt af FIFA né UEFA og leikur því aðeins vináttuleiki. Kepa mátti þess vegna spila þrátt fyrir að eiga þessa 13 leiki fyrir Spán.

Baskneska knattspyrnusambandið vinnur að því að fá alþjóðlega viðurkenningu en verði það að veruleika gæti Kepa ekki leikið fleiri leiki fyrir liðið af ofangreindum ástæðum.

Fjöldi þekktra leikmanna hefur áður leikið fyrir Baskaland, þar á meðal Xabi Alonso, Fernando Llorente og Javi Martinez.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅