Móðir stúlku sem var nauðgað tók málin í sínar hendur - „Manstu eftir mér?“
Ný heimildarmynd varpar ljósi á óhugnanlegt mál sem átti sér stað á Spáni fyrir nærri þremur áratugum. Það er þegar maður á sjötugsaldri nauðgaði unglingsstúlku og móðir hennar tók málin í sínar hendur.
Greint er frá málinu í nýrri heimildarmynd sem sýnd er á streymisveitunni Hulu. Kallast hún Hell on Earth: The Verónica Case.
Gamall maður með hníf
Árið 1998 sendi Maria del Carmen García þrettán ára dóttur sína Verónicu að sækja brauð í bænum Benejúzar, nálægt borginni Valencia á austurströnd Spánar. Verónica hafði oft farið þessa leið og klappaði gjarnan hundi sem ráfaði yfirleitt um.
En þennan tiltekna dag, laugardag í október mánuði, fann hún ekki hundinn. Þess í stað fann hún að fullorðinn maður setti hendur á axlir hennar. Þetta var Antonio Cosme, 62 ára múrari sem kallaður var Pincelito, maður sem var yfirleitt þögull og ekki áberandi í bæjarlífinu.
Pincelito dró fram hníf og hótaði Verónicu að hann myndi drepa hana ef hún öskraði. Hún grátbað hann að sleppa sér en hann dró hana út að trjám og nauðgaði henni.
Tók hníf og gekk af stað
„Ég skal sleppa þér en ef þú segir móður þinni frá þá sker ég þig á háls með sigð,“ sagði hann við stúlkuna.
Hún lofaði því til að sleppa frá honum en þegar hún kom heim sagði hún móður sinni strax frá því sem hafði gerst. María hikaði ekki heldur náði í hníf og gekk rakleiðis að manninum sem hafði brotið á dóttur hennar. Hún leit ekki einu sinni til beggja hliða áður en hún gekk yfir götur. Hún vissi hvar hann átti heima.
María hringdi dyrabjöllunni og Pincelito kom til dyra á náttfötunum. Hann sagðist vera nývaknaður og neitaði öllum hennar ásökunum. En María trúði honum ekki.
„Þú átt ekki skilið að lifa! Tíkarsonurinn þinn, tíkarsonurinn þinn!“ öskraði hún á hann.
Sæði og áverkar
Ekkert meira gerðist á þessum tíma. Nágrannarnir heyrðu ólætin og komu aðvífandi. Þeir fóru með Maríu heim og fljótlega vissu allir í bænum hvað hafði gerst. Sumir bæjarbúar sögðust ekki trúa þessu upp á Pincelito og sögðu að María hefði verið að reyna að kúga fé út úr honum. Maður á þessum aldri gæti ekki framið slíkt ódæði. Málið hafði slík áhrif á fjölskyldu Maríu að þau ákváðu að flytja í annað hverfi.
En á bak við frásögn Maríu var ekki aðeins vitnisburður dóttur hennar. Heldur einnig gögn frá móttöku Verónicu á bráðamóttökuna. Sæði og áverkar sem bentu til að ofbeldi hefði verið beitt.
Fjölskyldan kærði Pincelito. DNA greining sýndi fram á að sæðið var hans. Hann var loks dæmdur í níu ára fangelsi í lok árs 2000.
Fraus af ótta
Pincelito átti hins vegar ekki eftir að sitja svo lengi á bak við lás og slá. Einn dag í júní árið 2005 var María að bíða eftir strætó þegar hún sá allt í einu bíl stöðva við biðstöðina. Út steig Pincelito.
„Góðan dag, frú mín góð. Hvernig hefur dóttir þín það?“ spurði hann.
María fraus af ótta. Hún hafði ekki vitað að búið væri að sleppa honum út á reynslulausn. Hún óttaðist mest að Pincelito myndi elta hana heim og vinna Verónicu mein, jafn vel drepa hana. Hún sá að hann fór inn á veitingastað til að fá sér morgunmat.
Alelda
María fór rakleitt inn á næstu bensínstöð og bað um brúsa en enginn nógu stór var til. Þá fór hún heim til sín og sótti eins og hálfs líters flösku og eldspýtur. Hún fór aftur á bensínstöðina og fyllti flöskuna af bensíni. Því næst arkaði hún inn á veitingastaðinn þar sem Pincelito sat að snæðingi.
„Manstu eftir mér? Svo þú gleymir ekki,“ sagði María og sullaði bensíninu yfir hann. Því næst kveikti hún á eldspýtu og kastaði í hann. Hann varð samstundis alelda.
Pincelito hlaut alvarleg brunasár á 60 prósent líkamans og var fluttur í flýti á sjúkrahús. Þar lést hann tíu dögum seinna.
Eftirmálar
María var til að byrja með flutt á geðdeild en síðan ákærð fyrir manndráp. Árið 2009 var réttað yfir henni.
„Ég vildi ekki drepa hann. Ég vildi hræða hann svo hann myndi fara aldrei koma nálægt fjölskyldu minni aftur,“ sagði María í réttarhöldunum.
Verónica kom móður sinni til varnar. Hún kenndi einnig réttarkefinu um það sem gerst hafði.
„Móðir mín hefur verið í geðheilbrigðismeðferð allt frá þeim degi sem mér var nauðgað, og hún er það enn,“ sagði Verónica. „Hlutirnir hefðu verið öðruvísi ef nálgunarbann hefði verið í gildi.“
María hlaut níu og hálfs árs fangelsi. Þá var henni gert að greiða fjölskyldu Pincelito bætur. Árið 2010 var dómurinn mildaður í fimm og hálft ár.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗