Hafnaði viðtölum við New York Times og Forbes

Í svarinu kemur fram að ekki hafi verið settar sérstakar vinnureglur um meðferð viðtalsbeiðna til Jóhanns Páls. Reynt sé eftir fremsta megni að verða við beiðnum fjölmiðla um viðtöl en það sé ekki alltaf mögulegt vegna tímaskorts og annarra verkefna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur á yfirstandandi kjörtímabili hafnað viðtalsbeiðnum frá sex erlendum fjölmiðlum, þar á meðal bandarísku miðlunum New York Times, Forbes og CNBC.

Þetta kemur fram í skriflegu svari ráðherrans við fyrirspurn Diljár Mist Einarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sem birt var á vef Alþingis í dag.

Auk fyrrnefndra miðla hefur ráðherrann hafnað viðtalsbeiðnum frá bandaríska tímaritinu Foreign Policy, hollenska dagblaðinu Algemeen Dagblad og kanadíska ríkisútvarpinu CBC/Radio-Canada.

Tímaskortur og önnur verkefni

Í svarinu kemur fram að ekki hafi verið settar sérstakar vinnureglur um meðferð viðtalsbeiðna til ráðherrans.

Reynt sé eftir fremsta megni að verða við beiðnum fjölmiðla um viðtöl en það sé ekki alltaf mögulegt vegna tímaskorts og annarra verkefna.

Ekki kemur fram hvers vegna einstökum viðtalsbeiðnum erlendu fjölmiðlanna var hafnað eða hvenær þær bárust.

Jóhann Páll hefur einnig þurft að hafna viðtalsbeiðnum frá íslenskum fjölmiðlum á kjörtímabilinu vegna tímaskorts, að því er fram kemur í svarinu.

Veitt viðtöl eða svarað skriflegum fyrirspurnum

Ráðherrann hefur jafnframt veitt viðtöl eða sent skrifleg svör við fyrirspurnum fjölmargra erlendra fjölmiðla.

Þar á meðal eru Politico, Washington Post, CNN, Reuters, Guardian, Prospect og franska tímaritið L'Obs.

Þá kemur fram að Jóhann Páll hafi veitt fjölda viðtala við íslenska fjölmiðla, meðal annars RÚV, Vísi, Morgunblaðið, Samstöðina og Eyjuna.

Ekki sé hægt að gefa upp nákvæman fjölda viðtala sem ráðherrann hefur veitt á kjörtímabilinu. Stór hluti þeirra fari fram eftir ríkisstjórnarfundi, blaðamannafundi og kynningar þar sem ráðherrann veiti fjölmiðlum jafnan viðtöl ef aðstæður leyfi.

Í svari Þorbjargar kemur fram að aðeins hafi fundist eitt tilvik þar sem formlegri viðtalsbeiðni var hafnað á kjörtímabilinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þorbjörg hafnaði beiðni frá hollenskum miðli

Diljá Mist lagði sambærilegar fyrirspurnir fyrir fleiri ráðherra og voru svör Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra og Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra einnig birt á vef Alþingis í dag.

Í svari Þorbjargar kemur fram að aðeins hafi fundist eitt tilvik þar sem formlegri viðtalsbeiðni var hafnað á kjörtímabilinu.

Beiðnin barst með tölvupósti frá blaðamanni hollenska dagblaðsins Algemeen Dagblad en ráðherrann var vant við látin þegar blaðamaðurinn var staddur í Reykjavík.

Þorbjörg segir ekki hafa verið talda þörf á að setja sérstakar vinnureglur um meðferð viðtalsbeiðna innlendra fjölmiðla.

Hún hafi kappkostað að veita viðtöl þegar eftir því hafi verið leitað og svigrúm fundist í dagskránni.

Í svarinu kemur jafnframt fram að skriflegar viðtalsbeiðnir séu skráðar í málaskrá ráðuneytisins og að flestar slíkar beiðnir berist frá erlendum fjölmiðlum.

Að sögn Ölmu er afar sjaldgæft að hún hafni slíkum beiðnum. Hún muni þó eftir einu tilviki þar sem hún hafnaði viðtali við hlaðvarp vegna þess að umræðuefnið heyrði undir annan ráðherra. mbl.is/Karítas

Alma man eftir einni synjun

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra segir í sínu svari að ekki liggi fyrir upplýsingar um hvort eða hversu oft hún hafi hafnað viðtalsbeiðnum fjölmiðla á kjörtímabilinu eða frá hvaða miðlum þær hafi komið.

Ástæðan sé meðal annars sú að fjölmiðlar óski oft eftir viðtölum með óformlegum hætti, til dæmis með símtölum eða smáskilaboðum til ráðherrans eða starfsfólks ráðuneytisins.

Að sögn Ölmu er afar sjaldgæft að hún hafni slíkum beiðnum. Hún muni þó eftir einu tilviki þar sem hún hafnaði viðtali við hlaðvarp vegna þess að umræðuefnið heyrði undir annan ráðherra.

Alma segir meginregluna vera að verða við óskum fjölmiðla um viðtöl. Ef ekki sé unnt að veita viðtal á þeim tíma sem óskað er eftir sé reynt að finna annan tíma eða óskað eftir skriflegum spurningum.

Svör ráðherranna þriggja sýna að ekki liggur fyrir heildstætt yfirlit yfir allar viðtalsbeiðnir sem þeim hafa borist á kjörtímabilinu eða hvernig þeim hefur verið svarað.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅