Orri um Aron: Hann hefur hjálpað mér sem fyrirliða
„Þetta var nokkuð þægilegt,“ sagði Orri Steinn Óskarsson, fyrirliði Íslands, eftir 3:0-sigur á Lúxemborg á Laugardalsvelli í C-deild Þjóðadeildar karla í kvöld.
„Við gerðum þetta þægilegt fyrir okkur með góðum fyrri hálfleik og seinni hálfleikurinn var mjög öruggur, liðsframmistaðan var góð í dag,“ sagði Orri Steinn í viðtali við mbl.is eftir leikinn í kvöld.
Orri átti frábært skot í þverslána og mögulega inn í markið á 26. mínútu en Brynjólfur Darri Willumsson skallaði boltann inn þegar hann datt út í teiginn eftir skotið.
„Þetta leit út fyrir að vera inni en ég er ekki að stressa mig á því, leyfi dómurunum bara að sjá um þetta. Ég hélt að hann væri inni en er bara glaður að Brynjólfur skoraði eftir á. Ég hugsaði alveg að kæra en Brynjólfur sagði að þetta væri fyrsta landsliðsmarkið sitt og þá fær hann þetta,“ sagði Orri léttur.
Orri Steinn er ánægður með landsleikjagluggann en Ísland vann fyrri leikinn 5:0 gegn Búlgaríu.
„Þetta var mjög jákvæður gluggi. Við náðum að byggja á því sem við gerðum í fyrri glugganum. Að ná að halda hreinu fimm sinnum í röð í landsliðsfótbolta er frábært og að vera skilvirkir fram á við er eitthvað sem við getum verið ánægðir með og tekið með inn í undankeppnina fyrir EM.“
Orri tók við fyrirliðabandinu af Aroni Einari Gunnarssyni sem spilaði sinn síðasta landsleik í kvöld.
„Það var geggjað að fá hann inn á, það var markmiðið fyrir okkur sem vorum að byrja inn á að gera þetta þægilegt svo leikurinn væri ekki í ójafnvægi þegar hann kæmi inn á. Hann er goðsögn í íslenskum fótbolta og er vel metinn innan liðsins.
Ég ber mikla virðingu fyrir honum, hvernig hann hefur hjálpað mér sem fyrirliða og kennt mér á þetta að vissu leyti. Hann gaf mér punkta og tók mig undir arminn sem ég tek ekki sem sjálfsögðum hlut.“
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗