„Ég held að maður verði bara að taka einn dag í einu“

Tracy Pollan, eiginkona leikarans Michael J. Fox, segir þau hjónin taka einn dag í einu. Fox hefur lifað með Parkinsonsveiki í 35 ár AFP/Noam Galai

Tracy Pollan og Michael J. Fox hafa verið gift frá árinu 1988. Þótt þau hafi ólíkan smekk á bókum og sjónvarpsefni sameinast þau um eitt á hverjum degi. Bæði kunna þau að meta góða máltíð og njóta þess að setjast saman að borðum.

Pollan ræddi við tímaritið People á fjáröflunarkvöldi í New York um helgina. Fox greindist með Parkinsonsveiki árið 1991 og stofnaði níu árum síðar sjóð til að styrkja rannsóknir á sjúkdómnum. Dætur hjónanna þriggja voru með þeim á hátíðinni.

„Ég held að maður verði bara að taka einn dag í einu,“ sagði Pollan um það hvernig þau halda í bjartsýnina. Hún segir þau reyna að njóta augnabliksins þegar þeim líður vel.

Pollan hefur áður rætt um stuðninginn sem þau fá frá börnum sínum fjórum. Á hátíðinni í fyrra sagði hún bjartsýnina hjálpa eiginmanni sínum mikið. Jafnframt væri mikilvægt að viðurkenna hversu erfið veikindin væru, bæði fyrir hann og fólkið sem annast hann.

„Þetta er erfitt fyrir þau en þau eru alltaf til staðar fyrir okkur,“ sagði hún um börnin.

Michael J. Fox og Tracy Pollan ásamt dætrum sínum þremur um helgina. Frá vinstri eru Esmé Annabelle Fox, Schuyler Fox, Tracy Pollan, Michael J. Fox og Aquinnah Kathleen Fox. AFP/Noam Galai

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅