Drifkraftur eflingar landsbyggðarinnar
Tækifæri til að efla rannsóknir, nýsköpun og verðmætasköpun í heimabyggð, segir Þórey S. Þórisdóttir. mbl.is/Hákon
„Rannsóknasetrin eru ólík og hvert þeirra hefur byggt upp sérþekkingu og tengsl við sitt samfélag sem mér finnst mikilvægt að varðveita og byggja áfram á,“ segir Þórey S. Þórisdóttir, nýr forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands.
Undir þá stofnun heyra tólf faglega sjálfstæð setur, hvar unnið er að rannsóknum sem snerta meðal annars lífríki hafs og lands, ferðamál, náttúruvísindi, umhverfis- og landnýtingarmál, bókmenntir, sagnfræði, þjóðfræði og fornleifafræði.
Með aðsetur á Hólum
Opnun tveggja nýrra rannsóknasetra er í undirbúningi. Annað verður á sviði menntavísinda með aðsetur á Eskifirði og hitt tengt íslenska hestinum, staðsett á Hólum í Hjaltadal. Þar nyrðra verður aðsetur Þóreyjar í framtíðinni svo og aðsetur stofnunarinnar sem hún stýrir, sbr. það sem ráð var fyrir gert þegar Hólar og starfið þar urðu hluti af háskólasamstæðu Háskóla Íslands sem stofnað var til fyrr á þessu ári.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗