Lærisveinar Klopps kjöldrógu Hollendinga

Florian Wirtz skoraði tvennu fyrir Þjóðverja.

Florian Wirtz skoraði tvennu fyrir Þjóðverja. AFP/Odd Andersen

Þýskaland vann stórsigur á Hollandi, 5:0, í öðrum riðli A-deildar Þjóðadeildar Evrópu í fótbolta á Ólympíuleikvanginum í Berlín í kvöld. 

Með sigrinum unnu Þjóðverjar riðilinn en þýska liðið, hollenska liðið og gríska liðið enduðu öll með ellefu stig. Hollendingar enda í öðru sæti og Grikkir í þriðja og rétt missa af sæti í átta liða úrslitum. 

Liverpool-maðurinn Florian Wirtz skoraði tvö marka Þýskalands en Derry Scherhant, Nico Schlotterbeck og Brajan Gruda skoruðu hin mörkin. 

Jürgen Klopp var skiljanlega kátur á hliðarlínunni.

Jürgen Klopp var skiljanlega kátur á hliðarlínunni. AFP/Odd Andersen

Grikkir unnu þá 1:0-heimasigur á Serbum sem hafna í neðsta sæti án stiga. 

Giorgos Masouras skoraði sigurmark Grikkja á 69. mínútu. 

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅