Telur að Epstein hafi verið myrtur

Réttarmeinafræðingur dregur ákvarðaða dánarorsök Jeffreys Epstein í efa og segir gögnin benda til manndráps. AFP

Sérfræðingur í réttarlæknisfræði telur að kynferðisafbrotamaðurinn Jeffrey Epstein hafi verið myrtur í fangelsi árið 2019, þvert á opinbera niðurstöðu um að hann hafi svipt sig lífi.

Þetta kom fram í viðtali við Michael Freeman í fréttaþættinum BBC Newsnight í kvöld.

Epstein fannst látinn í fangaklefa sínum í New York 10. ágúst 2019, þar sem hann beið réttarhalda vegna ákæru um mansal í kynferðislegum tilgangi.

Telur Epstein hafa verið kyrktan

Freeman sagðist hafa farið yfir gögn frá réttarmeinafræðingsembætti New York-borgar og telja að Epstein hafi verið kyrktur, líklega aftan frá.

Kristin Roman, sem framkvæmdi krufninguna árið 2019, komst að þeirri niðurstöðu að áverkar Epsteins samrýmdust sjálfsvígi og að engin merki væru um varnaráverka sem búast mætti við ef um manndráp hefði verið að ræða.

Barbara Sampson, sem var þá yfirréttarmeinafræðingur New York-borgar, úrskurðaði að Epstein hefði svipt sig lífi. Hún hefur áður staðið við þá niðurstöðu en BBC hefur leitað eftir frekari viðbrögðum hennar.

Bróðir Epsteins leitar svara

Freeman hefur áður starfað sem sérfræðingur í dánarorsökum fyrir ríkissaksóknara í Bandaríkjunum í málum þar sem fólk hefur látist í haldi lögreglu, meðal annars í máli George Floyd í Minnesota.

Samkvæmt umfjöllun BBC byggði Freeman niðurstöður sínar á gögnum og ljósmyndum úr krufningarskýrslu sem Mark Epstein, bróðir Epsteins, lét honum í té. Freeman sá ekki líkið sjálfur.

Mark Epstein hefur alla tíð haldið því fram að bróðir hans hafi verið myrtur. Freeman sagði greiningu sína hins vegar óháða og að Mark Epstein hefði ekki greitt honum fyrir hana. Niðurstöðurnar hafa ekki verið birtar í ritrýndu vísindatímariti.

Segir merki um árás til staðar

Freeman sagði ýmis merki benda til þess að ráðist hefði verið á Epstein, meðal annars djúpa blæðingu í vinstri öxl og áverka sem gætu bent til þess að hann hefði verið sleginn í andlitið.

Hann taldi gögnin helst samrýmast því að Epstein hefði verið kyrktur með snöru og að sama snaran hefði síðan líklega verið notuð til að hengja líkið upp í kojuna.

Freeman sagði að svo virtist sem fingurnaglaför væru fyrir ofan snörufarið á hálsi Epsteins. Slíkir áverkar gætu samrýmst því að hann hefði verið kyrktur aftan frá og reynt að losa snöruna af hálsinum.

Í lok viðtalsins við BBC sagði Freeman að áverkarnir samrýmdust ekki aðstæðunum þar sem líkið fannst.

„Þá er aðeins ein skýring eftir, og hún er sú að andlátið hafi verið afleiðing manndráps,“ sagði Freeman.

Rannsókn eftirlitsaðila bandaríska dómsmálaráðuneytisins árið 2023 leiddi í ljós alvarleg mistök fangelsisstarfsmanna við eftirlit með Epstein. Engar vísbendingar fundust þó sem hnekktu niðurstöðu bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, um að dauði hans hefði ekki verið afleiðing refsiverðs verknaðar.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅