Ríkið endurgreiddi 3,8 milljarða
Langstærstur hluti endurgreiðslnanna á síðasta ári rann til Reykjavíkurborgar, eða tæpir 1,9 milljarðar króna. Það samsvarar rúmlega 49% af heildargreiðslum ríkisins til sveitarfélaganna. mbl.is/Golli
Endurgreiðslur ríkisins til sveitarfélaga vegna fjárhagsaðstoðar við erlenda ríkisborgara námu rúmlega 3,8 milljörðum króna á síðasta ári. Greiðslurnar jukust um tæplega 1,4 milljarða króna frá árinu 2024, eða um 56%.
Þetta kemur fram í skriflegu svari Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra, við fyrirspurn Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur, þingmanns Miðflokksins. Svarið var birt á vef Alþingis í dag.
Samkvæmt svarinu endurgreiddi ríkissjóður sveitarfélögum samtals tæplega 15 milljarða króna á árunum 2020 til 2025 vegna fjárhagsaðstoðar við erlenda ríkisborgara sem ekki eiga lögheimili hér á landi eða hafa átt lögheimili hér skemur en tvö ár.
Árið 2020 námu endurgreiðslurnar tæplega 1,6 milljörðum króna en fóru hæst í tæpa fjóra milljarða árið 2023. Þær lækkuðu í rúmlega 2,4 milljarða árið 2024 áður en þær jukust á ný á síðasta ári.
Þetta kemur fram í skriflegu svari Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra, við fyrirspurn Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur, þingmanns Miðflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Nærri helmingur greiðslnanna til Reykjavíkur
Langstærstur hluti endurgreiðslnanna á síðasta ári rann til Reykjavíkurborgar, eða tæpir 1,9 milljarðar króna. Það samsvarar rúmlega 49% af heildargreiðslum ríkisins til sveitarfélaganna.
Til samanburðar námu greiðslurnar til borgarinnar tæplega 1,1 milljarði króna árið 2024 og jukust því um tæplega 818 milljónir milli ára.
Hafnarfjarðarkaupstaður fékk næsthæstu endurgreiðslurnar á síðasta ári, eða rúmlega 767 milljónir króna. Greiðslurnar rúmlega tvöfölduðust frá árinu áður, þegar þær námu tæpum 383 milljónum króna.
Akureyrarbær fékk rúmlega 302 milljónir króna endurgreiddar, Reykjanesbær rúmlega 209 milljónir og Borgarbyggð um 191 milljón króna.
Þá námu endurgreiðslur til Kópavogsbæjar rúmlega 156 milljónum króna, Garðabæjar um 70 milljónum og Akraneskaupstaðar tæpum 70 milljónum króna.
Samanlagt fengu Reykjavíkurborg og Hafnarfjarðarkaupstaður rúmlega 2,6 milljarða króna endurgreidda, eða rúmlega 69% af heildarfjárhæðinni.
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, spurði hverjar endurgreiðslur ríkisins til sveitarfélaga skv. 2. mgr. 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga hefðu verið á tímabilinu 2020–2025 og hverjar væru áætlaðar endurgreiðslur árin 2026 og 2027. mbl.is/Anton Brink
Gert ráð fyrir mikilli lækkun á næsta ári
Í svari ráðherrans kemur einnig fram að áætlað sé að endurgreiðslur ríkisins til sveitarfélaga nemi 2,77 milljörðum króna á þessu ári og 1,5 milljörðum króna árið 2027.
Gangi áætlanirnar eftir verða greiðslurnar árið 2027 um 61% lægri en þær voru á síðasta ári.
Ekki kemur fram í svarinu hvaða forsendur liggja að baki þeirri lækkun sem gert er ráð fyrir.
Ríkið endurgreiðir samkvæmt lögum
Endurgreiðslurnar byggjast á 15. grein laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Samkvæmt ákvæðinu ber ríkissjóði að endurgreiða sveitarfélögum fjárhagsaðstoð sem þau veita erlendum ríkisborgurum sem hafa átt lögheimili hér á landi skemur en tvö ár.
Ákvæðið tekur einnig til aðstoðar við erlenda ríkisborgara sem ekki eiga lögheimili hér á landi. Slík aðstoð er þó bundin sérstökum skilyrðum, meðal annars um samráð við ráðuneytið og að áður hafi verið leitað aðstoðar frá heimalandi viðkomandi.
Endurgreiðslurnar ná því ekki til allrar fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga við erlenda ríkisborgara heldur aðeins þeirrar aðstoðar sem fellur undir umrætt lagaákvæði.
Í svari ráðherrans eru greiðslurnar sundurliðaðar eftir sveitarfélögum og árum og miðast fjárhæðirnar við bókfærð útgjöld ríkissjóðs á hverju ári.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

