Mjög tilfinningaríkt augnablik
Arnar Gunnlaugsson sagði það hafa fullkomnað kvöldið að geta sent Aron Einar Gunnarsson inn á völlinn í síðasta landsleik hans í knattspyrnu.
Aron jafnaði landsleikjamet Birkis Bjarnasonar þegar Ísland vann Lúxemborg, 3:0, á Laugardalsvelli í kvöld og tryggði sér sigur í riðli sínum í C deild Þjóðadeildarinnar.
„Þetta var náttúrulega orðið draumakvöld einhvern veginn,“ sagði Arnar eftir leikinn.
„Bæði við að vinna og svo fékk hann gríðarlega fallega kveðjustund. Þetta var bara mjög tilfinningaríkt móment.“
Arnar rifjaði upp að hann og Aron hefðu þekkst frá því að Aron var ungur leikmaður í yngri landsliðunum. Þeir hefðu síðan upplifað bæði sigra og sorgir með A landsliðinu og átt þátt í stórkostlegum árangri þess.
Þjálfaranum fannst því viðeigandi að landsliðsferli Arons lyki við þessar aðstæður.
„Það var vel við hæfi að hann myndi enda hérna á sínum heimavelli með sigri og hjálpa okkur að ná okkar markmiðum, sem var að vinna riðilinn.“
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗