Óhugnanlegt fyrirbæri sem milljónir hafa upplifað – „Þetta virðist svo raunverulegt“

Þegar Baland Jalal var ungur maður í Kaupmannahöfn varð hann fyrir upplifun sem hann gleymir seint. Hann lá í rúminu sínu þegar honum fannst draugur vera kominn til að drepa sig. Óttinn var yfirþyrmandi og það sem gerðist virtist svo raunverulegt að hann ákvað að komast að því hvað hefði átt sér stað.

Í dag er Jalal taugavísindamaður við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum og hefur helgað stóran hluta starfsævinnar rannsóknum á þessu óhugnanlega fyrirbæri.

Fyrirbærið nefnist svefnrofalömun (e. sleep paralysis) og samkvæmt umfjöllun breska dagblaðsins The Guardian, sem ræddi við Jalal á dögunum, hefur allt að einn af hverjum fimm upplifað það einhvern tíma á ævinni.

Óhugnanleg vera við rúmstokkinn

Svefnrofalömun verður þegar einstaklingur vaknar eða er að sofna en getur tímabundið hvorki hreyft sig né talað. Ástandinu geta fylgt afar skýrar ofskynjanir sem virðast fullkomlega raunverulegar.

Sumir sjá óhugnanlegar skuggaverur í svefnherberginu, aðrir finna fyrir því að einhver sitji á brjóstkassanum á þeim eða reyni að kæfa þá. Enn aðrir upplifa að ókunnug vera nálgist rúmið og ætli að gera þeim mein.

Jalal var aðeins 18 eða 19 ára þegar hann upplifði slíkt sjálfur.

„Ég lá í rúminu mínu og þessi draugur var að reyna að drepa mig,“ rifjar hann upp í samtali við The Guardian.

Hann segir reynsluna hafa verið svo yfirþyrmandi að hann hafi ákveðið að komast að því hvað væri í raun að gerast.

„Ég hugsaði með mér að ég yrði að komast að því hvað væri að gerast. Þetta virtist svo raunverulegt.“

Áhugi hans leiddi hann í nám í taugavísindum og síðar til Cambridge-háskóla og Harvard.

Heilinn vaknar en líkaminn er enn sofandi

Jalal útskýrir að svefnrofalömun tengist svokölluðum REM-svefni, eða draumsvefni. Á þessu svefnstigi er heilinn mjög virkur en starfsemi flestra viljastýrðra vöðva tímabundið bæld.

Eins og fram kemur í umfjöllun The Guardian kemur þetta meðal annars í veg fyrir að fólk framkvæmi þær hreyfingar sem það dreymir.

Stundum verður fólk meðvitað um umhverfi sitt áður en vöðvalömunin sem fylgir draumsvefni hefur gengið til baka. Það getur þá upplifað sig vakandi þótt það geti hvorki hreyft sig né talað.

Að sögn Jalals getur heilinn brugðist við þessu óvenjulega ástandi með því að skapa ógnvekjandi skýringar á því hvers vegna líkaminn hreyfist ekki.

Fólk getur því upplifað að einhver haldi því föstu eða að hættuleg vera sé stödd í herberginu.

Draugar, djöflar og geimverur

Það sem gerir fyrirbærið sérstaklega áhugavert er að ofskynjanirnar virðast meðal annars mótast af menningu og hugmyndum fólks.

Jalal segir að sumir sjái drauga eða djöfla en aðrir geimverur eða verur sem minna á persónur úr hryllingsmyndum.

Í Egyptalandi geti fólk til dæmis upplifað svokallaða djinna, yfirnáttúrulegar verur sem þekktar eru úr þjóðtrú.

Hann segir einnig frá stúlku sem taldi sig sjá sjálfa sig í spegli á meðan hún lá lömuð í rúminu. Í ofskynjuninni horfði hún á eigin líkama breytast í óhugnanlegt skrímsli.

Hægt að draga úr óttanum

Svefnrofalömun varir yfirleitt aðeins í nokkrar sekúndur eða mínútur, þótt þeim sem upplifa hana geti fundist mun lengri tími líða.

Jalal hefur einnig rannsakað aðferðir til að draga úr óttanum sem fylgir ástandinu.

Hann ráðleggur fólki meðal annars að loka augunum, reyna að halda ró sinni og minna sig á að svefnrofalömun sé tímabundið og yfirleitt hættulaust ástand.

Í stað þess að berjast af öllum kröftum við að hreyfa sig geti verið betra að sætta sig við ástandið þar til það líður hjá.

Samkvæmt Jalal benti lítil frumrannsókn meðal fólks með drómasýki til þess að hugræn aðferð sem hann hefur þróað gæti dregið úr tíðni svefnrofalömunar um það bil helming. Frekari rannsókna er þó þörf til að staðfesta árangurinn.

Jalal hefur nú sent frá sér bókina The Phantom Mind, þar sem hann fjallar um svefnrofalömun og hvað þetta sérkennilega ástand getur kennt okkur um starfsemi mannsheilans.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅