Nike tekur við af Adidas 26 árum síðar
Nike mun taka við af Adidas sem framleiðandi opinberra bolta í Meistaradeild Evrópu frá og með næstu leiktíð.
Adidas hefur séð um boltana sem notaðir eru í Meistaradeildinni frá árinu 2001 en því samstarfi lýkur næsta sumar eftir 26 ár.
Nike hefur gert samning sem gildir til ársins 2031 og nær einnig til Evrópudeildarinnar, Sambandsdeildarinnar og fleiri félagsliðakeppna UEFA. Er samningurinn metinn á um 45 milljónir Bandaríkjadala á ári.
Þetta verður í fyrsta sinn sem sami framleiðandi sér um leikboltana í öllum þremur helstu félagsliðakeppnum UEFA.
„Við erum spennt og stolt yfir því að snúa aftur í Meistaradeildina, eitt stærsta svið knattspyrnunnar, eftir meira en tvo áratugi,“ segir Camilo Andrade, yfirmaður knattspyrnudeildar Nike.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗