Grét þegar hún varði Jón vantrausti - „Ég hefði átt að standa með eigin sannfæringu“
Jódís Skúladóttir fyrrum þingmaður Vinstri grænna kemur Ingvari Þóroddssyni, sem flutti sig í dag úr Viðreisn í Sjálfstæðisflokkinn, til varnar. Hún minnir á að samkvæmt stjórnarskránni eigi alþingismenn ekki að fara eftir öðru en eigin sannfæringu. Segist hún sjá eftir því að hafa ekki gert það þegar hún lét undan þrýstingi og greiddi atkvæði gegn vantrauststillögu á Jón Gunnarsson þingmann Sjálfstæðisflokksins og þáverandi dómsmálaráðherra. Segir Jódís að það hafi fengið svo á hana að hún hafi farið að gráta.
Vantrauststillagan var borin upp í mars 2023 á Jón sem þá var dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Þingmenn Pírata, Samfylkingarinnar, Flokks fólksins og Viðreisnar, en allir flokkarnir voru þá í stjórnarandstöðu, lögðu fram tillöguna með vísan til þess að Jón hafi brotið lög með því að beita sér gegn því að þingið fengi umbeðnar upplýsingar frá Útlendingastofnun. Jón andmælti því en nánar má lesa um vantrauststillöguna og gang hennar á þingi hér en hún var á endanum felld.
Sannfæringin
Jódís skrifar um flokkaskipti Ingvars og sannfæringu þingmanna á Facebook:
„Við kjósum vissulega flokka og frambjóðendur bjóða sig fram undir merkjum þeirra flokka sem þeir finna samhljóm með, til að berjast fyrir þeim málefnum sem þeir trúa á. En samkvæmt 48. gr. stjórnarskrárinnar eru alþingismenn eingöngu bundnir við sannfæringu sína. Þingmaður er kjörinn til að fara með sjálfstætt umboð, ekki til að vera bundinn af fyrirmælum flokksforystu, ríkisstjórnar eða kjósenda.“
Jódís Skúladóttir
„En eitt skal ég segja ykkur. Það er ekki auðvelt að standa einn gegn öllum hinum og halda fast í eigin sannfæringu. Það er ekki auðvelt fyrir nýjan þingmann að horfa upp á málefni, og jafnvel stefnu flokksins sem hann trúði á og barðist fyrir í kosningabaráttu, molna í sundur í stólaleik og bitlingum við stjórnarmyndun. Stjórnarmyndun sem almennir þingmenn hafa oft litla sem enga aðkomu að og fá jafnvel takmarkaðar upplýsingar um.“
Jódís segist vissulega ekkert vita um innanbúðarmál Viðreisnar en þekkja vel til menningarinnar innan stjórnmálaflokka og segir að miðað við það sem meðal annars hafi komið fram hjá Jóni Gnarr nýlega virðist Viðreisn ekki vera nein undantekning.
„Elítismi, réttindafrekja, forréttindablinda og hrossakaup. Þegar ég segi þetta er ég ekki að halda því fram að allt fólkið sé illa innrætt. Ég er heldur ekki að segja að þátttaka í þessari menningu sé fyrsti kostur þeirra sem inn í hana dragast. En þetta er menning sem hefur fengið að þrífast allt of lengi. Forystan ræður. Á grasrótina er hlustað og henni lyft í aðdraganda kosninga. Nýju, bláeygðu fólki, sem trúir því í einlægni að það geti haft áhrif og berst af eldmóði fyrir stefnunni, er teflt fram til að tryggja atkvæði.“
Þegar hins vegar komi að stjórnarmyndun, málamiðlunum, nefndarsætum, embættum og bitlingum virðist stefnan og grasrótarmálin allt of oft þurfa að víkja.
Jón og grátur
Jódís segist áður hafa lýst því en endurtaki það nú að einn erfiðasti dagur hennar á Alþingi hafi verið þegar hún varði Jón Gunnarsson vantrausti:
„Það gerði ég gegn eigin sannfæringu. Ég neitaði staðfastlega að gera það. En mér var tjáð að hagsmunir þeirra málaflokka sem við börðumst fyrir, meðal annars réttarbætur fyrir öryrkja og önnur stór réttlætismál, skiptu meira máli í stóra samhenginu en persóna Jóns Gunnarssonar.“
„Ég vildi sitja í þingsalnum og greiða atkvæði með vantraustinu. En mér var sagt að það myndi sprengja ríkisstjórnina og þar með yrði úti um möguleika okkar á að koma góðum málum í gegn. Þrýstingurinn var gríðarlegur. Ég brotnaði. Ég fór að skæla. Og ég varði Jón Gunnarsson vantrausti. Eftir á að hyggja var það fullkomlega röng ákvörðun. Ég hefði átt að standa með eigin sannfæringu.“
Jón hafi síðan ekki endurgoldið stuðning hennar og annarra ráðherra og þingmanna Vinstri grænna þegar hann hafi dregið í efa að rétt væri að greiða atkvæði gegn vantrauststillögu á Svandísi Svavarsdóttur og síðan setið hjá þegar slík tillaga var lögð fram á Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur, þegar þær voru ráðherrar.
Menning
Jódís segir að þegar hún horfi til baka á sinn tíma á Alþingi þá telji hún að sú rótgróna valdamenning, sem hún hafi upplifað sjálf sem ofbeldisfulla og þrífist innan þingflokka, sé ein af ástæðum þess að þingmenn gefist upp og yfirgefi viðkomandi flokk.
Hrósar Jódís Ingvari og segir það einu gilda þótt þau séu alls ekki sammála í stjórnmálum:
„Ingvar Þóroddsson bauð sig fram í sínu kjördæmi til að berjast fyrir málefnum og stefnu sem hann trúði á og treysti að yrðu virt eftir kosningar. Nú hefur hann sjálfur viðurkennt að hafa gert mistök þegar hann greiddi samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar atkvæði sitt og beðist afsökunar á því.“
„Ég veit ekki hvaða þrýstingi hann kann að hafa verið beittur innan þingflokksins. En ég veit af eigin reynslu hversu erfitt það getur verið að standa gegn flokksaga þegar manni er talin trú um að allt annað sem maður berst fyrir sé í húfi. Ingvar hefur nú dregið línu í sandinn og sagt stopp. Ég er afar stolt af Ingvari. Við erum að flestu leyti ósammála í pólitík. Hann er hægrimaður og ég vinstrimanneskja. Ég er heldur enginn aðdáandi Sjálfstæðisflokksins.“
Segir Jódís að lokum að það séu ekki svik við kjósendur að viðurkenna mistök og fylgja eigin sannfæringu:
„Ég vona að fleiri þingmenn, úr öllum flokkum, muni eftir því að samkvæmt stjórnarskránni eiga þeir fyrst og fremst að fylgja eigin sannfæringu.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗