Fyrrum leikmaður Tottenham orðaður við Arsenal - Var hjá Skyttunum sem barn
Arsenal hefur áhuga á að fá Will Lankshear, framherja Middlesbrough, til félagsins. Teamtalk greinir frá þessu.
Lankshear er 21 árs og hefur farið á kostum í ensku B-deildinni eftir að hann gekk til liðs við Middlesbrough frá Tottenham í sumar. Hann hefur skorað 15 mörk í 16 leikjum í öllum keppnum, þar af 13 í 13 deildarleikjum.
Talið er að fleiri stórlið fylgist þó einnig með Lankshear og gæti samkeppnin um hann orðið mikil.
Lankshear lék með unglingaliðum Arsenal áður en hann fór til Sheffield United og síðar Tottenham. Middlesbrough greiddi um 20 milljónir punda fyrir hann í sumar.
Middlesbrough er á toppi B-deildarinnar og hefur engan áhuga á að selja framherjann í janúar. Tottenham hefur þá rétt til að jafna tilboð annarra félaga í leikmanninn eftir að hafa gert slíkt samkomulag við Middlesbrough við söluna.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗