Viðbjóður á hæsta stigi
Glæpasagnahöfundar eiga það til að færa sig æ nær brúninni í bókum sínum en áður hefur viðgengist, væntanlega til að ganga sem mest fram af lesendum, og virðist endalaust vera hægt að fara fetinu lengra.
Titillinn Dýpstu myrkur eftir sænska rithöfundinn Michael Hjorth og Bjarna Hauk Þórsson gefur til kynna hvað er í vændum í sögunni en það er sennilega viðbjóðslegra en flesta grunar. Sumir gætu jafnvel sagt að nú væri of langt gengið og ærin ástæða til að snúa við blaðinu.
Hjorth er þekktur höfundur í Svíþjóð og glæpasögur hans og Hans Rosenfeldt með sálfræðinginn Sebastian Bergman í aðalhlutverki hafa einnig vakið athygli hérlendis. Bjarni Haukur er sennilega kunnastur fyrir einleikinn Hellisbúann, þar sem léttleikinn og grínið er í hávegum haft, en nú er það heldur betur alvaran.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗