Þá líður öllum miklu betur
Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu, var ánægður með niðurstöðuna þótt frammistaða Íslands hefði ekki verið gallalaus í 3:0 sigri á Lúxemborg á Laugardalsvelli í kvöld.
Sigurinn tryggði Íslandi efsta sætið í riðli sínum í C deild Þjóðadeildarinnar og sæti í B deild.
„Þetta var nú alls ekkert einhver besti leikur í heimi en það voru móment sem voru mjög góð,“ sagði Arnar eftir leikinn.
Hann sagði íslenska liðið hafa átt í vandræðum með pressuna fyrstu tuttugu mínúturnar. Lúxemborg hefði sýnt góð tilþrif í uppspilinu en gæðin ekki verið næg þegar nær dró marki Íslands.
Íslensku leikmennirnir hefðu jafnframt verið fljótir að komast aftur fyrir boltann og loka miðsvæðinu.
„Fannst við éta þá nokkuð oft í pressunum,“ sagði Arnar, sem taldi liðið einnig hafa átt góða kafla í sókninni.
Fyrsta markið hefði síðan létt spennunni.
„Þetta er leikur sem fólk er að bíða eftir fyrsta markinu og þá einhvern veginn líður öllum miklu betur. Þetta var tiltölulega öruggur sigur í lokin.“
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗