Eiður Smári átti erfitt með sig í beinni
Eiður Smári Guðjohnsen átti erfitt með sig þegar hann ræddi um Aron Einar Gunnarsson eftir síðasta landsleik fyrrverandi fyrirliða íslenska landsliðsins í kvöld.
Eiður var í settinu hjá Sýn Sport eftir leik en Aron Einar lék sinn síðasta landsleik fyrir Íslands hönd þegar liðið vann 3:0-sigur á Lúxemborg í C-deild Þjóðadeildar Evrópu. Með sigrinum tryggði Ísland sér efsta sæti riðilsins og þar með sæti í B-deild í næstu keppni.
Aron lék sinn 113. landsleik í kvöld og jafnaði þar með leikjamet Birkis Bjarnasonar.
„Það er bara kúl að gráta aðeins. Þetta hellist yfir mann og allt í einu er þessi kafli búinn, en hvað getum við annað sagt? Hann er fyrirliðinn, eins og strákarnir komu inn á. Þegar við förum og gúgglum fyrirliða þá er hann á mynd ásamt stórum og merkum mönnum,“ sagði Eiður í útsendingunni.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
