Er þetta ógirnilegasta afmæliskaka allra tíma?

Hefur þú útbúið afmælisköku sem heppnaðist ekki alveg eins og til stóð? Samsett mynd

Ísterta sem kona að nafni Katee, kh21mama á Threads, útbjó fyrir fertugsafmæli eiginmanns síns hefur vakið mikla kátínu á netinu. Hún notaði sprautupoka til að setja súkkulaðikrem með muldu Oreo-kexi á kökuna. Það hljómar kannski ekki sérstaklega fyndið, enda algeng aðferð, en útkoman minnti á eitthvað allt annað en gómsætt kökukrem. Börnin hennar voru því fljót að nefna hana „kúkakökuna“.

Katee, sem býr í Minneapolis, ákvað að taka mynd af kökunni áður en hún smurði kreminu almennilega út og gat ekki hætt að hlæja að útkomunni. Hún deildi myndinni svo á Threads þann 3. nóvember síðastliðinn.

„Ég óttast að ég eigi aldrei eftir að hætta að hlæja að útkomunni,“ skrifaði hún við færsluna.

Netverjar létu ekki sitt eftir liggja og klósetthúmorinn flæddi um athugasemdakerfið. Einn kallaði hana „kattasandsköku“ og annar sá fyrir sér að börn um allt land myndu biðja um kúkaköku í afmælið sitt. Fleiri tóku einnig þátt í þræðinum og birtu myndir af eigin misheppnuðum réttum.

„Ætlarðu að hafa hana svona?“

Í samtali við TODAY.com sagðist Katee oft baka fyndnar og óvenjulegar kökur fyrir fjölskylduna, yfirleitt viljandi. Þessa ístertu hefði hún gert oft áður, en Oreo-súkkulaðikremið væri ný viðbót.

„Maðurinn minn elskar ístertur,“ sagði hún og bætti við að hún hefði notað sprautupokann til að auðveldara væri að smyrja kreminu út.

Eiginmaðurinn rak inn nefið á meðan á verkinu stóð og spurði: „Ætlarðu að hafa hana svona?“

„Nei, nei, þetta er bara hluti af ferlinu,“ svaraði Katee.

Að lokum tókst henni að smyrja kreminu út og skreyta tertuna með Oreo-kexkökum. Hún birti svo mynd af lokaafurðinni, sem sló í gegn hjá afmælisbarninu og öðrum sem fengu að bragða.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅