Allt vitlaust vegna nýrra Netflix-þátta – „Þetta er nánast klám“
Fókus
Mánudaginn 16. nóvember 2026 20:30
Þættirnir hafa fengið talsvert umtal. Mynd/Netflix
Nýir sjónvarpsþættir á Netflix hafa vakið hörð viðbrögð meðal áhorfenda og trúarhópa, sem saka streymisveituna um að ganga allt of langt í kynferðislegri framsetningu og gera lítið úr kristinni trú.
Tugir þúsunda hafa skrifað undir áskorun um að þættirnir verði teknir af dagskrá streymisveitunnar.
Um er að ræða þættina The Body, sem voru frumsýndir á Netflix þann 11. nóvember. Í umfjöllun ástralska fréttamiðilsins News.com.au kemur fram að þættirnir hafi þegar valdið töluverðu fjaðrafoki á samfélagsmiðlum.
Þættirnir gerast árið 2004 og fjalla um hóp stúlkna í kaþólskum framhaldsskóla sem hafa brennandi áhuga á dansi og eru allar í danshópi skólans, Lions.
„Þegar ein stúlknanna tekur þátt í inntökuathöfn á hrekkjavökupartíi fer hins vegar allt á versta veg. Athöfnin virðist kalla fram sjálfan djöfulinn og í kjölfarið fara stúlkurnar að sjá dularfullar sýnir sem virðast spá fyrir um framtíðina.
Þáttunum hefur verið líkt við blöndu af hryllingsmyndinni Jennifer's Body og sjónvarpsþáttunum Yellowjackets, þar sem unglingadrama, yfirnáttúrulegur hryllingur og kynferðisleg spenna fléttast saman.
„Hvernig getur fólk horft á þetta?“
Það eru þó ekki aðeins satanískar athafnir og myrkur söguþráður sem hafa vakið athygli, heldur ekki síður kynlífssenur sem einkenna þættina.
Á samfélagsmiðlum hafa sumir áhorfendur gengið svo langt að líkja efninu við klám.
„The Body á Netflix er aðeins einu skrefi frá því að vera klám,“ skrifar einn notandi á X.
Annar tekur í sama streng:
„Ég reyndi að horfa á The Body á Netflix. Hvernig getur fólk horft á svona þætti? Þetta er bara klám.“
En ekki eru allir jafn ósáttir. Aðrir áhorfendur hafa lýst yfir mikilli hrifningu og segjast hafa orðið svo heillaðir að þeir hafi horft á alla þættina í einni lotu. Þættirnir hafa fengið ágætar viðtökur og eru til dæmis með einkunnina 7,6 á IMDB og 87% á RottenTomatoes.
Tugir þúsunda krefjast þess að þáttunum verði hætt
Þrátt fyrir góðar viðtökur frá gagnrýnendum hafa margir kallað eftir því að þættirnir verði hreinlega teknir af dagskrá.
Á vef samtakanna CitizenGO, sem standa meðal annars fyrir undirskriftasöfnunum um samfélags- og trúmál, hefur verið hrundið af stað herferð þar sem þess er krafist að Netflix hætti sýningum á þáttunum.
Samkvæmt News.com.au, sem vísar til umfjöllunar Forbes, höfðu um 90 þúsund manns skrifað undir áskorunina innan við viku eftir frumsýningu þáttanna.
Í áskoruninni er því haldið fram að þættirnir vanvirði trú milljóna kristinna fjölskyldna.
Herferðin hófst raunar áður en þættirnir voru frumsýndir, en ekki tókst að koma í veg fyrir að þeir færu í loftið þann 11. nóvember.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗