Katrín og Vilhjálmur léku krikket á götum Mumbai

aðal myndate Vilhjálmur Bretaprins og Katrín prinsessa mæta til krikketleiks í Mumbai 16. nóvember ásamt indversku krikketgoðsögninni Sachin Tendulkar. Leikurinn markaði upphaf fyrstu opinberu utanlandsferðar hjónanna saman í tæp fjögur ár. AFP/Indranil Mukherjee

Katrín prinsessa og Vilhjálmur Bretaprins hófu í dag þriggja daga heimsókn til Indlands. Í Mumbai tók indverska krikketgoðsögnin Sachin Tendulkar á móti hjónunum og lék við þau krikket, rétt eins og þegar þau heimsóttu borgina fyrir áratug.

Katrín og Vilhjálmur fóru síðast saman í opinbera utanlandsferð í desember 2022 þegar þau sóttu afhendingu Earthshot-umhverfisverðlaunanna í Boston.

Verðlaunin verða að þessu sinni afhent í Mumbai annað kvöld og verða hjónin þar viðstödd.

Vilhjálmur Bretaprins, Katrín prinsessa og Sachin Tendulkar stilltu sér upp með börnum í Ballard Estate-hverfinu í Mumbai í dag að loknum krikketleik. AFP/Indranil Mukherjee

Fékk góð ráð fyrir leikinn

Skólabörn söfnuðust saman til að fylgjast með leiknum í Ballard Estate-hverfinu, þar sem algengt er að fólk leiki krikket á þröngum götum og í húsasundum.

Vilhjálmur fékk nokkur ráð hjá Tendulkar áður en hann tók sér kylfu í hönd en einn nemendanna sló hann úr leik í þriðja kasti.

Katrín hitti boltann við mikinn fögnuð áhorfenda. Keppnisskapið leyndi sér þó ekki hjá eiginmanni hennar þegar kom að honum að kasta. Boltinn straukst við kylfu Katrínar og annar leikmaður greip hann á lofti. Þar með var prinsessan úr leik og Vilhjálmur lyfti höndum sigri hrósandi.

„Takk kærlega fyrir. Það er svo yndislegt að vera hér aftur,“ sagði Katrín við börnin sem komu til að fylgjast með leiknum.

Katrín prinsessa býr sig undir að slá þegar Vilhjálmur Bretaprins kastar til hennar. AFP/Indranil Mukherjee

Sérsaumuð taska fyrir Katrínu

Síðar um daginn tóku hjónin neðanjarðarlest í Mumbai og hittu meðal annars konur sem starfa þar sem lestarstjórar. Katrín hafði þá skipt um föt og klæddist bláum kjól. Við hann bar hún tösku sem breska tískuhúsið DeMellier lét gera sérstaklega fyrir hana í tilefni af afhendingu verðlaunanna. Taskan er úr leðurlíki sem unnið er úr stönglum hrísplöntunnar og hýði hrísgrjónanna.

Vilhjálmur stofnaði til Earthshot-verðlaunanna fyrir sex árum til að styðja við lausnir á umhverfisvanda.

Í ávarpi við komuna til Indlands sagði hann að hvergi hefðu fleiri komist í úrslit eða hlotið verðlaunin en þar í landi.

Katrín prinsessa og Vilhjálmur Bretaprins á lestarstöðí dag. Katrín bar tösku sem breska tískuhúsið DeMellier lét gera fyrir hana í tilefni af afhendingu Earthshot-verðlaunanna. AFP/Punit Paranjpe

Daily Mail

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅