Léttur andi í Foo Fighters sem skilar sér á tónleikum

Rokksveitin Foo Fighters er á leið til landsins næsta sumar og boðar stórtónleika í Nýju-Laugardalshöllinni.

Ilan Rubin, trommari sveitarinnar, gaf kost á viðtali í gegnum myndsímtal í síðustu viku. Sveitin var þá á ferðalagi um Ástralíu og hafði fengið góða dóma fyrir tónleikana.

„Þetta hefur verið frábært. Ég held að okkur hafi komið einstaklega vel saman, bæði félagslega og tónlistarlega,“ segir Rubin þegar hann er fyrst spurður um það hvernig sé að vera nýi gaurinn í svo gamalgróinni hljómsveit. Hann tók við trommusettinu í fyrra af Josh Freese. Sá tók sem kunnugt er við af Taylor Hawkins sem lést árið 2022 aðeins fimmtugur að aldri.

Ilan Rubin tók við sem trommari Foo Fighters í fyrra og þykir hafa komið afar sterkur inn. AFP/Mauro Pimentel

Hann segir að þótt Foo Fighters sé risastór hljómsveit starfi hún að mörgu leyti eins og lítil hljómsveit. Æfingar fari fram í frekar litlu herbergi, „sem hljómar ekkert sérstaklega vel, bara svona skemmtilegt og hrátt,“ eins og hann orðar það, og andrúmsloftið í kringum tónleika sé mjög afslappað.

„Það er léttleiki í loftinu sem ég held að skili sér í þeirri gleði sem er á sviðinu. Það sést að við skemmtum okkur, ég held að áhorfendur nærist á því, og auðvitað nærumst við á orkunni sem þeir koma með. Það er mikið flæði í gegnum svona, svona langt sett,“ segir hann en tónleikar Foo Fighters hafa staðið um þrjá klukkutíma undanfarið og öll þekktustu lög sveitarinnar hafa fengið að hljóma.

Við getum ekki litið fram hjá því að þú spilar á trommur í hljómsveit sem er leidd af einum þekktasta trommara rokksögunnar. Hvernig myndir þú lýsa þeirri tilfinningu?

„Ég get skilið að einhver í minni stöðu yrði kannski stressaður eða kvíðinn yfir því,“ segir Rubin sem kveðst ekki hafa fundist verkefnið of stórt.

Foo Fighters er í dag skipuð Nate Mendel, Rami Jaffee, Dave Grohl, Pat Smear, Chris Shiflett og Ilan Rubin. AFP/Frazer Harrison

„Ég veit ekki hvort það er vegna þess að ég byrjaði að spila á trommur sjö og hálfs árs. Ef það er eitthvað sem ég treysti, þá er það geta mín. Og þú veist, mér finnst hann og ég eiga margt sameiginlegt,“ segir hann og bætir við að sem trommarar þekki þeir margt í spilamennsku hvors annars.

Dave Grohl afar umburðarlyndur

Þegar tækifærið bauðst hafi hann því stokkið á það og nú þegar meira en ár er liðið megi fullyrða að samstarfið hafi verið farsælt. Grohl er að hans sögn afar umburðarlyndur. Sjálfur sé hann duglegur að vinna heimavinnuna sína og leggi áherslu á smáatriðin. En komi fyrir að hann átti sig á því að eitthvað hefði átt að gera öðruvísi vilji Grohl sem minnst af því heyra.

„Ég held að það sé líklega annar misskilningur sem fólk hefur, að af því að hann er svo mikill trommari sé hann alltaf að anda ofan í hálsmálið á trommaranum. Hvað sem því líður þá er það alls ekki þannig. Auk þess er frábært að við fáum að skipta í nokkrar mínútur á tónleikum, ég spila á gítar og hann á trommur,“ segir hann en þeir sem hafa séð Foo Fighters á tónleikum síðasta árið geta vottað að Ilan Rubin þarf ekkert að skammast sín fyrir gítarleik sinn.

Tónleikarnir á Íslandi verða fyrstu tónleikarnir á ferðalagi Foo Fighters um Evrópu næsta sumar.

Þú hefur spilað með Trent Reznor og núna Dave Grohl. Alls ekki slæmt. Hvernig myndir þú lýsa því að vinna með þessum tveimur stóru persónuleikum í tónlistinni?

„Hvort tveggja hefur verið stórkostleg reynsla. Ég á þeim báðum gríðarlega mikið að þakka. Trent fyrst og fremst vegna þess að ég byrjaði að spila með Nine Inch Nails tvítugur. Þegar ég lít til baka er ótrúlegt að hugsa til þess að hann hafi gefið mér tækifæri til þess.

Þá hugsaði ég bara: „Frábært, nú er tækifærið mitt og ég er með, ég ætla að gera þetta og þetta verður frábært.“ Eftir á að hyggja virðist það enn ótrúlegra. Og augljóslega er það frábært, frábært að fara frá því yfir í Foo Fighters. Og þeir tveir sem einstaklingar gætu ekki verið ólíkari hvað persónuleika varðar. Ekki á neikvæðan hátt.

Dave er ótrúlega mannblendinn. Hann lætur öllum líða vel. Trent er Trent. Hann, þú veist, það býr miklu meira í honum en fólk heldur, og hann er mjög fyndinn náungi, en dulúðin er eiginlega hluti af ímyndinni.

Og þú veist, hluti af ímynd Daves er einfaldlega að skemmta sér og spila.”

Dave Grohl í góðum gír á Secret Solstice í Laugardal árið 2017. mbl.is/Hanna

Hann kveðst ánægður með skiptin. Hann hafi notið hverrar mínútu með Nine Inch Nails og það geri hann líka nú með Foo Fighters.

„Hvern dag sem við spilum risatónleika eða förum út og borðum góðan kvöldverð með vinum hugsa ég: Ég er mjög, mjög heppinn að vera í þessari hljómsveit í þessari stöðu, sérstaklega á þessum tímapunkti í lífi mínu. Á þessum tímapunkti á ferlinum, ef svo má segja, eða hvað sem við viljum kalla þetta, þessu stigi tónlistarmennsku minnar, hvað sem það er, þá finnst mér bara eins og allt sé þar sem það á að vera og ég er þakklátur fyrir það.“

Ókei. Tölum um Ísland.

„Ég er persónulega mjög spenntur því ég hef aldrei komið þangað,“ segir Rubin sem hefur verið lengi í bransanum þó að hann hafi ekki gengið til liðs við Foo Fighters fyrr en í fyrra. Hann hafði áður spilað með Nine inch nails, Lostprophets, Angels & Airwaves og fleirum. Ferillinn spannar yfir tvo áratugi.

„Ég er 38 ára núna en fór í fyrsta alþjóðlega tónleikaferðalagið mitt fimmtán eða sextán ára, ég hef ferðast um Evrópu í 21 ár. Samt hef ég aldrei komist til Íslands. Það er satt að segja sjaldgæft á þessum tímapunkti að fara eitthvert sem ég hef ekki komið til að minnsta kosti einu sinni, hvað þá nokkrum sinnum. Þannig að þetta verður frábært og ef mér skjátlast ekki held ég að það séu fyrstu tónleikarnir á ferðalaginu. Ég er mjög spenntur.“

Spenntur fyrir íslensku brennivíni

Dave Grohl, forsprakki Foo Fighters, hefur sagt að Ísland sé eftirminnilegasti staður sem hann hefur komið til. Sveitin hefur þrisvar haldið hér tónleika, árin 2003, 2005 og 2017, og frægt varð í þessum heimsóknum að Grohl tók ástfóstri við íslenskt brennivín. Hann tók með sér nokkrar flöskur af landi brott, klæddist brennivínsbol á tónleikunum hér og boðaði fagnaðarerindið í erlendum fjölmiðlum.

Rubin hafði ekki heyrt af ást Grohls á brennivíni en leist nokkuð vel á. „Ég er meira en til í að prófa. Mér finnst gaman að prófa innlent áfengi, bjóra, sterka drykki, hvað sem það er. Það er eitt sem ég er ævintýragjarn með. Ég smakka alltaf matinn á þeim stöðum sem við heimsækjum. Þú verður líka að segja mér hvað ég á að borða þegar ég er þarna.“

Við eigum kæstan mat og fleira góðgæti…

„Það er nánast jafn mikilvægt að vita hvað maður á ekki að borða.“

Dave Grohl, trymbill Nirvana, gerðist mikill Íslandsvinur eftir að hann setti Foo Fighters á laggirnar. Hér er hann í Laugardalshöllinni árið 2003. mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅