Nemendur við MR hundfúlir - Segja námið hafa verið gengisfellt og gagnrýna rektor harðlega

Hópur nemenda við Menntaskólann í Reykjavík (MR) gagnrýnir harðlega breytingar á námi við skólann. Segja nemendurnir að rektor MR hafi ekki hlustað á mótbárur þeirra og það hafi heldur ekki breytt neinu í þeim að efnum að kennarar við skólann hafi tekið þátt í að andmæla breytingunum. Er þar ekki síst vísað til umdeildra breytinga á námi í latínu sem tóku gildi í haust. Vilja nemendurnir meina að nám við MR hafi verið skert og dregið hafi úr sérstöðu skólans þar sem alltaf hafi verið gerðar ríkari kröfur til nemenda en í flestum öðrum íslenkum framhaldsskólum. Gagnrýna þeir sömuleiðis rektor skólans harðlega fyrir skort á samráði. 

Þetta kemur fram í bókun sem lögð var fram af hálfu nemenda á fundi skólanefndar MR, fyrir nýliðna helgi. 

Nemendur deildu nokkuð á breytingarnar á latínunáminu á síðasta skólaári en þær snúast í megindráttum um að hætta latínukennslu á fyrsta ári fyrir nemendur í fornmáladeild. Nemendur og sömuleiðis fyrrverandi nemendur sögðu að með þessu væri í raun verið að leggja niður fornmáladeildina og hætta kennslu í latínu. Sólveig Guðrún Hannesdóttir rektor tjáði hins vegar Vísi í febrúar síðastliðnum að sú væri alls ekki raunin heldur væri markmiðið að laða fleiri nemendur að námi við deildina sem væri afar fámenn en þá voru aðeins níu nemendur skráðir í námið.

Latína

Í bókun nemenda segir að þar til á þessu skólaári hafi MR haft sérstöðu gagnvart öðrum íslenskum framhaldsskólum þegar kemur að námsframboði og metnaði í námskröfum. Nemendur sem ljúki stúdentsprófi frá MR hafi haft sérstöðu eftir kröfuhart og strangt nám og prófið verið trygging fyrir því að standa í fremstu röð þegar komi að kröfum um undirbúning fyrir háskólanám. Við styttingu náms til stúdentsprófs hafi hins vegar verið vegið að nemendum, ekki eingöngu í MR heldur öllum íslenskum framhaldsskólum. Kennurum hafi verið gert það erfiðara að undirbúa nemendur fyrir háskólanám og borið hafi á því að umsóknum um nám við erlenda háskóla hafi verið hafnað vegna ónógs undirbúnings eða þurft hafi að bæta hann upp sérstaklega. Áður hafi íslenskir stúdentar ekki síst úr MR verið eftirsóttir í háskólum víða um heim.

Á síðasta skólaári hafi síðan syrt enn frekar í álinn þegar rektor MR hafi að eigin frumkvæði og gegn vilja nemenda og kennara komið á breytingum á námskrá skólans. Þar hafi verið um gengisfellingu á náminu að ræða og námskröfur hafi verið skertar á öllum brautum skólans.

Er þar sérstaklega vísað til náms í latínu sem nemendur segja að dugi ekki lengur til undirbúnings fyrir háskólanám í fornfræði og öðrum greinum hugvísinda. Um leið hafi verið tekið upp sjálfshjálparnámskeiðið lífsleikni sem sé óþarfi. Með þessum breytingum hafi stúdentspróf við MR verið jafnað niður til samræmis við framhaldsskóla með áfangakerfi, en MR er með bekkjakerfi, með kerfislæga hvatningu til skerðingar námskrafna. Sé það óvinafögnuður þeim sem litið hafi velgengni MR og kosti skólans fram yfir áfangaskóla hornauga.

Rektor hafi hins vegar haft andmæli nemenda og kennara við þessum breytingum að engu.

Minnast nemendur þess að hafa óskað eftir því í vor að Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra myndi neita að samþykkja breytingarnar á latínunáminu og öðru námi við skólann, en ráðherrann varð ekki við því.

Samráð

Segjast nemendur hins vegar nú hafa uppgötvað misbresti við framkvæmd breytinganna og vísa þar til ákvæða í lögum um framhaldsskóla um að við breytingar á námsskrá skuli leitast eftir staðfestingu skólanefndar, að fenginni umsögn almenns skólafundar. Einnig sé kveðið á um í lögunum að nemendum skuli veitt tækifæri til að taka þátt í gerð námsskrár síns skóla.

Ekki sé ljóst hvort þetta samráð hafi átt sér stað. Samkvæmt aðalnámsskrá framhaldssskóla eigi fundargerðir skólanefndar að vera aðgengilegar á heimasíðu hvers skóla. Fundargerðir skólanefndar MR sé hins vegar hvergi að finna á heimasíðu skólans.

Raunar er litlar upplýsingar um skólanefnd að finna á heimasíðu MR aðrar en þær hverjir eiga sæti í henni. Engar upplýsingar er að sjá um hvert hlutverk nefndarinnar sé og þaðan af síður eru einhverjar fundargerðir sjáanlegar. Til samanburðar má nefna að fundargerðir skólanefndar Menntaskólans við Hamrahlíð er að finna á heimasíðu þess skóla.

Segir í bókun nemendanna við MR að þeir hafi spurst fyrir um fundargerðir skólanefndar hjá skrifstofu skólans, rektor og skjalastjóra skólans. Sá síðastnefndi hafi reynst hafa þær undir höndum en upplýst að hægt yrði að gera þær aðgengilegar í þessari viku þar sem fara yrði yfir þær með tilliti til persónuverndarsjónarmiða. Segja nemendur þær skýringar varla standast en nefna má að í fundargerðum skólanefndar MH er að finna nöfn nefndarmanna og efni funda. Í nýjustu fundargerðinni er einnig að finna kennitölur nefndarmanna og netföng þeirra.

Upplýsingar

Nemendurnir segja hins vegar ljóst að á meðan fundargerðir skólanefndar MR séu ekki aðgengilegar sé ekki hægt að kanna hvort breytingarnar á náminu hafi verið kynntar fyrir nefndinni og staðfestar af henni og heldur ekki hvort fyrir hafi legið umsögn almenns skólafundar:

„Rektor leyfði sér á opinberum vettvangi að saka andstæðinga sína í latínumálinu um upplýsingaóreiðu, ljóst er af þessu að rektor ætti að líta í eigin barm.“

Segja nemendur að lokum að samráð feli ekki í sér að valta einhliða yfir vilja og rök þeirra sem samráð eigi að hafa við, samkvæmt lögum um faramhaldsskóla. Það feli í sér óhlýðni við lögin.:

„Nemendum skólans er mikilvægt að hafa sem fyrirmynd í skólastarfinu löghlýðni, formfestu og hófsama virðingu fremur en frekju, virðingu og metnaðarleysi.“

Er skólanefnd að lokum hvött til þess að beita sér fyrir því að snúa breytingum rektors á námskránni við.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅