Við bara pökkuðum þeim saman
„Flottur leikur, 3:0-sigur, héldum hreinu og kláruðum riðilinn. Þetta verður eiginlega ekki betra,“ sagði Hákon Arnar Haraldsson varafyrirliði Íslands eftir 3:0-sigur á Lúxemborg á Laugardalsvelli í C-deild Þjóðadeildar karla í kvöld.
Ísland vann fyrri leikinn í glugganum 5:0 gegn Búlgaríu síðastliðinn föstudag svo þetta landsleikjahlé gekk eins og í sögu hjá liðinu.
„Þetta er ógeðslega góð tilfinning, 8:0 samanlagt í glugganum. Auðvitað getur maður sagt að andstæðingurinn sé ekkert frábær en við bara pökkuðum þeim saman í báðum leikjunum og sýndum hversu góðir við erum,“ sagði Hákon í viðtali við mbl.is eftir leikinn.
Ísland féll úr B-deildinni í mars 2025 gegn Kósovó.
Eru þið með sterkara lið núna en þegar þið félluð úr B-deildinni?
„Jú, það má segja það. Menn eru líka mjög heitir, sérstaklega Orri, Andri og Mikael Egill og varnarlínan okkar er með fimm hrein lök. Arnar var nýbyrjaður á móti Kosovo og við erum búnir að spila marga leiki núna og búnir að spila okkur betur saman.“
Hvort er skemmtilegra að vinna nánast alla leiki í C-deild eða tapa flestum á móti betri liðum í B-deild?
„Það er alltaf gaman að vinna en það verður ný áskorun að fara inn í B-deildina og spila á móti betri liðum og sjá hvernig við stöndum gegn þeim.“
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗